Gagnrýni

Hreinræktaður húmor í innyflakássu

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Þeir eru ekki frýnilegir, nasistasombíarnir í Dead Snow: Red Vs Dead.
Þeir eru ekki frýnilegir, nasistasombíarnir í Dead Snow: Red Vs Dead.
Dead Snow: Red vs. Dead

Leikstjóri: Tommy Wirkola

Aðalhlutverk: Vegar Hoel, Ørjan Gamst, Martin Starr, Hallvard Holmen, Jocelyn DeBoer og Ingrid Haas



Dead Snow: Red vs. Dead er framhald norsku sombímyndarinnar Dead Snow sem sló óvænt í gegn árið 2009. Þeir sem hafa ekki séð fyrri myndina þurfa þó ekki að örvænta því framhaldsmyndin byrjar á því að rifja upp helstu tíðindi þeirrar fyrri.

Satt best að segja bjóst ég ekki við miklu. Fyrri myndin var ágæt en tók sig helst til of alvarlega í staðinn fyrir að leyfa húmornum að hafa yfirhöndina. Enda nánast ómögulegt að gera mynd um morðóða nasistauppvakninga án þess að hafa grínið tiltækt. Því kom framhaldsmyndin mér skemmtilega á óvart og er hún talsvert betri en sú fyrri. Húmorinn ræður hér ríkjum og er leikstjóranum Tommy Wirkola ekkert heilagt þegar hann reynir að ganga fram af áhorfendum aftur og aftur og aftur. Og alltaf þegar mér leið eins og ég væri að horfa á extra langan Steindaþátt tónaði Tommy myndina aðeins niður sem varð til þess að hún hélt mér allan tímann.

Dead Snow: Red vs. Dead er í einu orði sagt sprenghlægileg. Ég hló allan tímann og er greinilegt að kvikmyndagerðarmennirnir hafa unun af því sem þeir eru að gera og mikinn áhuga á þessu viðfangsefni. Húmorinn verður til þess að þó að blóðið flæði og innyfli kastist hingað og þangað gæti myndin skemmt hverjum sem er – jafnvel þeim viðkvæmu.

Þessi mynd er hreinræktuð afþreying og góð afþreying sem slík. Hér eru engir Óskarsverðlaunahafar á ferð en myndin á eflaust eftir að slá í gegn hjá áhorfendum um allan heim.

Niðurstaða:

Þessi mynd rakar ekki til sín faglegum og fáguðum kvikmyndaverðlaunum en hún heldur manni, er sprenghlægileg og gengur endurtekið fram af manni. Hreinræktað skemmtiefni!


Tengdar fréttir

Innyfli og blóð á íslenskri grundu

Langt og gríðarlega blóðugt sýnishorn úr kvikmyndinni Dead Snow 2 er komin á netið. Myndin var tekin á Íslandi síðasta sumar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×