Innlent

Hreindýrin við húsdyrnar hjá prestinum í allt sumar

Kristján Már Unnarsson skrifar
Hreindýr hafa í sumar haldið sig í byggð á tveimur stöðum í Breiðdal, við Breiðdalsvík og Heydali. Þessi hegðun þykir afar óvenjuleg þar sem hreindýrin eru yfirleitt hátt uppi á fjöllum og víðsfjarri mannabyggðum um þetta leyti árs. Í fréttum Stöðvar 2 var rætt við Gunnlaug Stefánsson, sóknarprest og fyrrverandi alþingismann í Heydölum.

Ferðamenn á leið um Breiðdal í sumar hafa rekið upp stór augu að sjá óvænt hreindýr rétt við þjóðveginn. Tvo tarfa sáum við í fjörunni rétt utan við Breiðdalsvík í landi Snæhvamms. Ferðamenn standast ekki mátið að stíga út úr bílnum og ná af þeim myndum. Það vakti athygli okkar hvað hreindýrin voru spök og létu ferðamennina ekkert trufla sig.

Þegar við svo ókum inn í sveitina sáum við aðra tvo tarfa við kirkjustaðinn Heydali. Sóknarpresturinn Gunnlaugur Stefánsson segir okkur að dýrin hafi haldið sig á túnum prestssetursins í allt sumar.

„Þetta er nýtt að við skulum hafa þau hér yfir sumartímann, hérna bara alveg við bæinn, bókstaflega, vegna þess að þau eru hérna bara við húsdyrnar mínar á morgnana þegar ég kem út,” segir Gunnlaugur.

Þessir tveir tarfar hafa haldið sig við prestssetrið í Heydölum í sumar.Stöð 2/Friðrik Þór Halldórsson.
Um þetta leyti árs eru hreindýrin yfirleitt stygg og halda sig á fjöllum Austurlands og fjarri mannabyggðum. Þau eru hins vegar gæfari yfir vetrartímann og koma þá oft til byggða.

„Venjulega eru hér í kringum okkur síðla vetrar hátt í hundrað dýr, sem eru hérna í kring, - á túnunum í kringum bæinn. Þessir tveir tarfar urðu viðskila við hópinn og fóru ekki til fjalla með þeim og hafa verið hér síðan, og eru miklir vinir okkar, og eru til þess að gera bara spakir. Okkur finnst við þekkja þá, og þeir þekkja okkur, - finnst okkur, - allavega bílana okkar. Þegar við keyrum framhjá þeim á okkar bílum þá haggast þeir ekki.

Og veri þeir bara hjartanlega velkomnir að vera hér áfram,” segir presturinn og þingmaðurinn fyrrverandi.

Hreindýr hafa verið á beit í fjörunni við Breiðdalsvík, skammt frá þjóðveginum, ferðamönnum til ómældrar ánægju.Stöð 2/Friðrik Þór Halldórsson.

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×