Innlent

Hreiðar Már stefnir ríkinu: Segir sérstakan hafa nýtt sér tengsl við dómara og skjöl verið fölsuð

Birgir Olgeirsson skrifar
Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings.
Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings. Vísir/GVA
Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, hefur stefnt íslenska ríkinu til greiðslu miskabóta. Þetta kemur fram í grein Hreiðars Más sem nefnist Að velja sér sinn dómara og birtist í Fréttablaðinu í dag.

Þar bendir Hreiðar Már á að Embætti sérstaks saksóknara hefði fengið hlerunarbeiðnir gegn sér stimplaðar af dómara við Héraðsdóms Vesturlands árið 2010. Þá var Benedikt Bogason dómari við Héraðsdóm Vesturlands, en hann er í dag Hæstaréttardómari.

Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari og fyrrverandi sérstakur saksóknari.Vísir/GVA
Hreiðar furðar sig á þessari ákvörðun Embættis sérstaks saksóknara að leita til Héraðsdóms Vesturlands því embættið var með aðsetur í Reykjavík og þeir sem áttu að hlera dvöldu í Reykjavík og höfðu lögheimili erlendis.

„Með því að velja Héraðsdóm Vesturlands var Embætti sérstaks saksóknara ekki einungis að velja sér dómstól heldur í raun einnig að velja sér dómara. Ef Embætti sérstaks saksóknara hefði leitað til Héraðsdóms Reykjavíkur hefðu starfsmenn embættisins ekki vitað hvaða dómari fengi málinu úthlutað. Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, hafði áður en hann tók við því embætti verið Sýslumaðurinn á Vesturlandi. Þá var hann með aðsetur á Akranesi, sem er í umdæmi Héraðsdóms Vesturlands. Það var því ákaflega hentugt fyrir Ólaf Þór að beina hlerunarbeiðnum sínum til Benedikts Bogasonar dómara, en þeir höfðu á sama tíma til fjölda ára gegnt embættisstörfum réttarkerfisins á Vesturlandi. Þar áður höfðu þeir stundað nám á sama tíma í Lagadeild Háskólans og unnið um tíma saman hjá Sýslumanninum í Hafnarfirði,“ segir Hreiðar Már í greininni.

Benedikt Bogason.
Hreiðar segir að undir rekstri dómsmála sem hafa verið höfðuð á hendur honum hafi komið fram í vitnisburði fyrrverandi lögreglumanns hjá Embætti sérstaks saksóknara að Benedikt Bogason hafi skáldað upp þinghald og falsað skjal þess efnis þegar hann útvegaði lögreglumönnum Embættis sérstaks saksóknara hlerunarúrskurðinn.

„Ekkert þinghald var haldið, engin gögn voru lögð fram, dómarinn lagði ekkert sjálfstætt mat á hvort nauðsyn væri að hlera símtöl mín og ekkert vitni var að þinghaldinu eins og lög kveða á um. Hlerunarúrskurðurinn var einfaldlega stimplaður á heimili Benedikts Bogasonar í Reykjavík,“ segir Hreiðar Már.

„Af þessum sökum, vegna spillingar embættismanna ríkisins, hef ég stefnt íslenska ríkinu til greiðslu miskabóta. Málið var þingfest í síðasta mánuði en ríkislögmaður fékk frest til að skila greinargerð til 17. janúar.“


Tengdar fréttir

Að velja sér sinn dómara

Það getur skipt miklu fyrir aðila dómsmáls hvaða einstaklingur er valinn sem dómari í máli þeirra. Allir þeir sem hafa unnið við eða komið að dómsmálum vita að val á dómara getur jafnvel skipt sköpum við úrlausn mála.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×