Innlent

Hreiðar Már á leið á Vernd

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings.
Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings. Vísir/GVA
Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, verður fluttur af fangelsinu að Kvíabryggju og á Vernd að Laugarteigi í Reykjavík næstkomandi mánudag. Þar hittir hann fyrir Magnús Guðmundsson, Ólaf Ólafsson og Sigurð Einarsson sem dvalið hafa í Laugardalnum undanfarnar tvær vikur.

Hreiðar Már hefur afplánað rúmlega eitt ár af fimm og hálfs árs fangelsisdómi sem hann hlaut í Al-Thani málinu. Fangar þurfa að uppfylla ýmis skilyrði til að til að komast í afplánun á Vernd. Þeirra á meðal eru að hafa ekki gerst sekir um agabrot mánuðina sex á undan svo dæmi sé nefnt.

Vistmenn á Vernd taka fullan þátt í almennum heimilisstörfum, uppvaski, skúringum og þrifum auk þess sem þeir greiða leigu. Þá er skilyrði að þeir stundi vinnu eða nám á meðan dvöl þeirra stendur. Þá stund sem vistmenn eru ekki í húsi er haft eftirlit með þeim rafrænt, þeir ganga sem sagt með hið svokallað öklaband.

Þá greindi Mbl.is frá því í gær að Annþór Karlsson og Börkur Birgisson væru komnir í opið fangelsi, á Kvíabryggju annars vegar og Sogn hins vegar, eftir að hafa afplánað hluta dóma sinna vegna líkamsárása á Litla-Hrauni. Þeir voru á dögunum sýknaðir af ákæru um árás sem leiddi til dauða samfanga í fangelsinu. Ríkissaksóknari hefur áfrýjað dómnum til Hæstaréttar.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×