Handbolti

Hreiðar Levý: Fer að verða þreyttur á þessum sigurleikjum

Þór Símon Hafþórsson skrifar
Hreiðar Levý Guðmundsson var sáttur í kvöld
Hreiðar Levý Guðmundsson var sáttur í kvöld Vísir/Eyþór
„Mjög ánægður. Tveir sigrar í röð þannig það er bara gaman,“ sagði Hreiðar Levý Guðmundsson hinn ánægðasti eftir frábæran leik í markinu er hans menn í Gróttu lönduðu góðum 11 marka, sigri á Víkingum.

„Ég bjóst alveg eins við því að við myndum vinna. Ég var allavega að vona það en maður fer kannski ekki inn í leik í deildinni með aðeins einn sigur á bakinu haldandi að maður sé að fara vinna með 10 mörkum. Það væri bara asnalegur hroki,“ sagði Hreiðar, en fyrir síðustu umferð var Grótta enn án sigurs og þá átta leikir búnir.

Aðspurður hvort þeir myndu mæta með hrokan á lofti í næsta leik gegn Fjölni var Hreiðar svellkaldur.

„Maður fer að verða þreyttur á þessum sigurleikjum. Náum okkur aftur á jörðina með einu tapi. Helst í einhverjum æfingaleik á milli jóla og nýárs,“ en þá viðurkenndi Hreiðar að hann hafi bara verið að grínast.

“Nei við mætum bara auðmjúkir og slakir til leiks gegn Fjölni,“ sagði dúnmjúkur Hreiðar að lokum.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×