Innlent

Hrefnu rak á land í Vogum

Samúel Karl Ólason skrifar
Hrefnan liggur í fjörunni við Hvammsgötu í Vogum.
Hrefnan liggur í fjörunni við Hvammsgötu í Vogum. Mynd/Ásgeir Eiríksson
Hrefna liggur nú dauð í fjörunni við Hvammsgötu í Vogum eins og sjá má á myndum sem Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri Voga sendi á fjölmiðla nú í morgun. Ásgeir segir líklegt að hrefnan hafi drepist og rekið upp í fjöruna.

Hann segir einnig að líklega sé um unga hrefnu að ræða og að hún sé um sex til sjö metrar að lengd.

Mynd/Ásgeir Eiríksson



Fleiri fréttir

Sjá meira


×