Viðskipti innlent

Hraustleikamerki á markaði

stjórnarmaðurinn skrifar
Úrvalsvísitala Kauphallar Íslands tók dýfu eftir áramótin og lækkaði um rétt tíu prósent á tveggja vikna tímabili. Hún hefur nú að einhverju leyti rétt úr kútnum, þótt nokkuð sé í land að tap fyrstu daga ársins vinnist til baka.

Eins undarlegt og það kann að hljóma er þetta sennilega hraustleikamerki á íslenska markaðnum.

Verðþróunin er nefnilega að mestu í samræmi við þá sem orðið hefur á alþjóðamörkuðum. Þannig hefur sambærilegt verðfall orðið á hlutabréfavísitölum í New York og London. Verst hafa Kínverjar þó orðið úti en hlutabréfavísitalan í Shanghæ féll um rétt 19 prósent á fyrstu tveimur vikum ársins.

Ástæðurnar fyrir verðhruninu eru, eins og gengur og gerist, margþættar. Fyrir það fyrsta þá hefur olía hrunið í verði og er nú fatið á rétta þrjátíu dali sem er einungis fjórðungur þess verðs sem fékkst í árslok 2014. Allajafna á lágt olíuverð ekki að verða til þess að fella hlutabréfamarkaði, enda mörg fyrirtæki sem dafna á tímum ódýrari olíu. Líklegt er að bætt lausafjárstaða slíkra fyrirtækja skili sér í leiðréttingu á hlutabréfamörkuðum þegar fram líður.

Til skamms tíma eykur olíuverðið þó á óvissuna á mörkuðum. Blikur eru á lofti um efnahagsástandið í Kína sérstaklega, en einnig í Rússlandi og mörgum olíuríkja Austurlanda nær. Þessi lönd hafa gegnt mikilvægara hlutverki en áður í að snúa hjólum alheimshagkerfisins í kjölfar lausafjárkreppunnar árið 2008.

Við þetta bætist svo að afkomutalna nokkurra félaga er beðið með eftirvæntingu. Þar vegur Apple þyngst sem stærsta fyrirtækið vestanhafs og ágætis mælieining á stemningu meðal neytenda hverju sinni.

Hvað ástæður fyrir falli hlutabréfa hér á landi varðar þá sér nú fyrir endann á gjaldeyrishöftunum, en brotthvarf þeirra ætti að gera íslenskan hlutabréfamarkað háðari erlendum sveiflum en verið hefur. Auk þess hefur komið fram að skuldsett hlutabréfakaup hafa aftur færst í aukana hér á landi. Þeir sem fjármagna kaup sín með slíkum hætti hafa meiri hvata til að selja þegar syrtir í álinn.

Áhugavert er að fylgjast með einstökum félögum. Sennilega má rekja tíu prósenta lækkun N1 það sem af er ári til titrings á olíumarkaði, neikvæðrar umfjöllunar um einn stjórnarmanna félagsins og umræðu um skort á samkeppni á innlendum olíumarkaði. Erfiðara er hins vegar að rýna í lækkun á bréfum Icelandair, en allajafna hefði sögulega lágt olíuverð og hvert metárið í ferðamennsku á fætur öðru talist til jákvæðra tíðinda.

Stjórnarmaðurinn er sigldur innherji með puttann á púlsinum. Stjórnarmaðurinn skrifar í Markaðinn í Fréttablaðinu á miðvikudögum og liggur ekki á skoðunum sínum um menn og viðskiptaleg málefni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×