Skoðun

Hraunavinir dæmdir fyrir friðsamleg mótmæli

Gunnsteinn Ólafsson skrifar
Fyrir ári síðan voru Hraunavinir handteknir þegar þeir mótmæltu með friðsamlegum hætti framkvæmdum við lagningu Álftanesvegar. Þeir voru tíndir upp einn af öðrum og settir í fangaklefa, sumir einu sinni, aðrir tvisvar. Á dögunum féll dómur í héraðsdómi vegna mótmælanna. Einn var dæmdur fyrir að taka límband verktakans, annar fyrir að liggja afvelta í mosa, sá þriðji slapp við handtöku því að armur laganna megnaði ekki að bera hann á brott sökum þyngsla. Samtals voru níu Hraunavinir sakfelldir.

Hverju skilaði þá barátta Hraunavina í Gálgahrauni? Framkvæmdinni við Álftanesveg var gjörbreytt. Vegurinn verður aðeins tveggja akreina í stað fjögurra. Í stað mislægra gatnamóta koma hringtorg og undirgöng fyrir gangandi vegfarendur. Vegur frá norðri til suðurs þvert á Álftanesveg verður felldur úr skipulagi. Fyrir þjóðarbúið þýðir þetta sparnað upp á þrjá milljarða.

Stjórnsýslan virðist einnig betur á verði. Skipulagsstofnun sýnir meira viðnám en áður og skipulagsnefndir sveitarfélaga eru meðvitaðri um hlutverk sitt. Nýlega hafnaði t.d. skipulagsnefnd Garðabæjar beiðni um stækkun golfvallar út í Búrfellshraun.

Við handtökurnar fyrir ári síðan kom í ljós hversu frjálslegt starf lögreglunnar er í krafti 19. greinar lögreglulaga. Lögreglunni virðist í sjálfs vald sett hvern hún handtekur, hvenær og hvar og hvort mótmælendur séu handjárnaðir eða mjó plastbönd hert að úlnliðum þeirra. Satt að segja kom það á óvart hversu harkalegum aðferðum lögreglan beitti við handtökur í Gálgahrauni. Að minnsta kosti virti lögreglan ekki stjórnarskrárvarinn rétt þjóðarinnar til friðsamlegra mótmæla.

Sáttmáli gagnlaust plagg

Þáttur saksóknarans er einnig kapítuli út af fyrir sig. Hann skipulagði aðgerðir gegn Hraunavinum á vettvangi, tók á móti þeim á lögreglustöðinni á Hverfisgötu, lét loka þá inni, valdi þá úr sem átti að lögsækja og mætti sjálfur í réttarsal til að stýra málflutningi. Margir furða sig á þeirri heift og langrækni sem saksóknarinn sýnir friðsömum borgurum, svo ekki sé minnst á hvað öll þessi aðgerð hefur kostað.

Baráttan í Gálgahrauni leiddi í ljós að Árósasáttmálinn er, þegar á reynir, gagnslaust plagg á Íslandi. Alþingi Íslendinga samþykkti breytingar á EES-samningnum og fullgilti Árósasáttmálann á árinu 2012 svo aðild náttúruverndarsamtaka að umhverfismálum væri tryggð. Réttaráhrifin reyndust engin. Alls staðar var Hraunavinum vísað frá innan stjórnsýslunnar í Gálgahraunsmálinu á þeim forsendum að þeim væri málið óskylt. Þegar dómstólaleiðin var reynd tók ekki betra við. Hæstiréttur benti Hraunavinum vinsamlegast á að snúa sér til stjórnsýslunnar. Þar væri vel tekið á móti fólki. Þögn Alþingis bendir til þess að þingmönnum sé ekki ljóst að fullgilding Árósasáttmálans mistókst á Íslandi. Sáttmálinn átti að vera mesta réttarbót síðari tíma í sögu náttúruverndar hér á landi. Málsmeðferðin gegn Hraunavinum sýnir að réttarbótin náði aldrei fram að ganga. Náttúruvernd á Íslandi er lagalega séð aftur komin á byrjunarreit.




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×