Gagnrýni

Hrátt og flippað

Freyr Bjarnason skrifar
vísir/getty
Tónleikar

Shellac

Fimmtudagskvöld

ATP-tónlistarhátíðin



Steve Albini, upptökustjóri Surfer Rosa með Pixies og In Utero með Nirvana, er forsprakki bandaríska rokktríósins Shellac. Ekki kom á óvart að tónlistin var hrá og gítardrifin.

Melódíurnar voru af skornum skammti og áhersla lögð á hvellinn gítarleikinn með hægum og öruggum trommuleik. Söngur hins stirðbusalega Albini var ekkert sérlega heillandi en tónlistin var oftast nær áhugaverð. Varð hún samt leiðinlegri eftir því sem á leið.

Þetta voru flippaðir náungar. Bassaleikarinn flögraði um sviðið og þóttist vera flugvél og trommarinn labbaði um sviðið með trommu í langlokunni The End of Radio og henti kjuðum út í sal. Í lokalaginu tóku Albini og bassaleikarinn Bob Weston sig til og fjarlægðu trommusett félaga síns smám saman þannig að í lokin hélt hann aðeins á kjuðunum. Undarleg en fyndin uppákoma sem vakti lukku tónleikagesta.

Niðurstaða:

Hrátt, gítardrifið rokk með flippuðum spilurum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×