Viðskipti innlent

Hrannar hættur hjá Vodafone

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hrannar Pétursson lætur af störfum hjá Vodafone.
Hrannar Pétursson lætur af störfum hjá Vodafone. visir/pjetur
Hrannar Pétursson, sem starfað hefur sem framkvæmdastjóri samskiptasviðs Vodafone, hefur tekið þá ákvörðun að hætta störfum hjá fyrirtækinu en þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.

Hann hefur starfað hjá Vodafone í sjö og hálft ár. Undir samskiptasvið heyra markaðsmál, starfsmannamál og lögfræðimál auk almanna- og fjárfestatengsla.

Samkomulag hefur náðst um að Hrannar láti strax af störfum. Ábyrgð á málefnum samskiptasviðs færist til forstjóra þar til annað verður ákveðið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×