Sport

Hrafnhildur með næst besta tímann í undanrásunum

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Hrafnhildur Lúthersdóttir.
Hrafnhildur Lúthersdóttir. Vísir/Getty
Sundkonan Hrafnhildur Lúthersdóttir komast áfram í undanúrslitin í 50 metra bringusundi á Evrópumeistaramótinu í sundi í 50 metra laug en Hrafnhildur náði öðrum besta tímanum í undanrásunum í morgun.

Sjá einnig:Hrafnhildur vann aftur til verðlauna á EM

Hrafnhildur hefur byrjað mótið af miklum krafti en hún fylgdi eftir silfurmedalíunni á miðvikudaginn í 100 metra bringusundi með bronsverðlaunum í gær í 200 metra bringusundi.

Hrafnhildur náði öðrum besta tíma undanrásanna af fjörutíu keppendum þegar hún kom í mark á 30,94 sekúndum.

Var Hrafnhildur aðeins fjórum sekúndubrotum frá Íslandsmeti hennar í greininni, 30,94 sekúndu.

Undanúrslitasundið fer fram seinna í dag en úrslitasundið fer fram á morgun en þar gæti Hrafnhildur krækt í þriðju verðlaun sín á mótinu.


Tengdar fréttir

Hrafnhildur: Getur allt gerst á Ólympíuleikum

Hrafnhildur Lúthersdóttir náði sögulegum árangri þegar hún vann til silfurverðlaunâ á EM í sundi í London í gær, á nýju Íslandsmeti. Er hún fyrsti íslenski sundmaðurinn sem vinnur til verðlauna á EM í 50 m laug.

Ætlaði mér að synda miklu hraðar

Eygló Ósk Gústafsdóttir lenti í 6. sæti í 200 metra baksundi á EM í London í gær. Anton Sveinn McKee endaði í 7. sæti í 100 metra bringusundi og Hrafnhildur Lúthersdóttir náði góðum tíma í sömu grein.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×