Sport

Hrafnhildur í undanúrslit

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Hrafnhildur gerði gott mót í morgun
Hrafnhildur gerði gott mót í morgun vísir/vilhelm
Hrafnhildur Lúthersdóttir tryggði sig inn í undanúrslit í 50 metra bringusundi á Evrópumótinu í sundi í Berlín í morgun á nýju Íslandsmeti.

Hún kom í mark á 31,21 sekúndu og bætti fyrra met sitt um 16 hundraðshluta úr sekúndu. Hún keppir í undanúrslitunum síðar í dag.

Ingibjörg Kristín Jónsdóttir keppti einnig í morgun. Hún synti 50 metra skriðsund á 26,92 sekúndum og var síðust í sínum riðli í undanrásunum. Ingibjörg komst ekki áfram.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×