Sport

Hrafnhildur í fimmta sæti

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Frábær dagur að baki hjá Hrafnhildi.
Frábær dagur að baki hjá Hrafnhildi. vísir/stefán
Hrafnhildur Lúthersdóttir varð í fimmta sæti í 50 metra bringusundi á EM í 25 metra laug.

Hrafnhildur synti úrslitasundið á 30,03 sekúndum eða á  nákvæmlega sama tíma og hún synti í undanúrslitasundinu klukkutíma áður. Hún jafnaði því eigið Íslandsmet sem var klukkutíma gamalt.

Hrafnhildur var 0,67 sekúndum á eftir Ruta Meilutyte frá Litháen sem hreppti gullverðlaunin.

Frábær árangur hjá okkar kona sem er augljóslega í frábæru formi.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×