Sport

Hrafnhildur bætti eigið Íslandsmet

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Hrafnhildur Lúthersdóttir stóð sig vel í dag.
Hrafnhildur Lúthersdóttir stóð sig vel í dag. vísir/valli
Hrafnhildur Lúthersdóttir bætti eigið Íslandsmet í 100 metra bringusundi á Evrópumótinu í Berlín í dag.

Hún synti á 1:08,19 mínútum, en gamla metið var 1:08,57 mínútur. Bæting upp á tæpa hálfa sekúndu hjá Hrafnhildi í dag.

Tíminn skilar henni í 10. sæti, en átta bestu keppa til úrslita. Hún er þó annar varamaður í úrslitasundið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×