Sport

Hrafnhildur: Ég veit að mamma og pabbi elska mig ennþá

Óskar Ófeigur Jónsson í Ríó skrifar
Hrafnhildur Lúthersdóttir var alveg búin á því eftir sundið. Hún gaf allt sitt.
Hrafnhildur Lúthersdóttir var alveg búin á því eftir sundið. Hún gaf allt sitt. Vísir/Anton
Hrafnhildur Lúthersdóttir komst ekki í úrslit í 200 metra bringusundi kvenna en náði engu að síður næstbesta árangri íslenskrar konu á í sundkeppni Ólympíuleikanna með því að taka ellefta sætið.

„Ég reyndi mitt besta og skildi allt eftir í lauginni. Það gekk bara ekki upp í þetta skiptið. Ég hefði viljað fara hraðar en meira að segja með minn besta tíma frá EM þá hefði ég verið í níunda og ekki komist áfram," sagði Hrafnhildur. Hún fékk litla hvíld á milli sunda og var þarna að synda fimmta sundið á fjórum dögum.

„Þetta er svolítið mikið og það var skrýtið hvað bringusundið fékk litla hvíld á milli á meðan að baksundið fékk þrjá daga sinna. Það er ekkert hægt að kvarta yfir því eða koma með neinar afsakanir," sagði Hrafnhildur Lúthersdóttir.

„Ég hefði þurft að bæta Íslandsmetið og það bara gekk ekki upp. Þær eru rosalega góðar og einhverjar þeirra voru sem dæmi ekki í hundrað metra sundinu. Þær voru því meira hvíldar fyrir þetta. Einhverjar eru líka á einhverjum lyfjum og það er líka eitthvað. Það er leiðinlegt að hugsa út í það að ein brautin hefði ekki átt að vera þarna. Það er bara ekkert hægt að gera í því," sagði Hrafnhildur.

Ólympíuleikarnir eru á enda hjá henni en árangurinn var sögulegur.

„Þetta var ótrúlega skemmtileg reynsla og ótrúlega gaman. Fyrir fjórum árum þá hefði mér aldrei dreymt þetta. Þá var ég bara ánægð að vera hérna. Að komast í úrslit, 6. sæti og komast í undanúslit, 11. sæti. Þetta er frábært," sagði Hrafnhildur.

„Ég er rosalega sátt við þetta og ég er sátt heim. Ég veit að mamma og pabbi elska mig ennþá og þjálfarnir eru sáttir við þetta þannig að ég er bara rosalega ánægð," sagði Hrafnhildur.


Tengdar fréttir

Nesty: Hrafnhildur er yndisleg persóna

Hrafnhildur Lúthersdóttir synti sig inn í undanúrslit í báðum greinum sínum á Ólympíuleikunum í Ríó fyrst íslenskra kvenna. Hún synti í undanúrslitum í 200 metra bringusundi í nótt. Hrafnhildur hefur fyrrverandi Ólympíumeistara með

Hrafnhildur um Nesty: Í fyrra var ég að kenna honum hvað ég vil gera

Hrafnhildur Lúthersdóttir vill frekar fá meiri upplýsingar en minni og er því mjög ánægð með að hafa aðgang að báðum þjálfurum sínum á leikunum í Ríó. Hér eru bæði Klaus-Jürgen Ohk sem þjálfar hana á Íslandi og Anthony Nesty sem þjálfar hana úti í Flórída.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×