Innlent

Hrækti tvisvar framan í lögreglumann

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Vísir/Pjetur
Kona búsett hér á landi á yfir höfði sér allt að sex ára fangelsi fyrir að hafa hrækt í tvígang í andlit lögreglumanns. Atvikið átti sér stað að kvöldi mánudagsins 4. júní árið 2012 við Fögrubrekku í Kópavogi. Var lögreglumaður við skyldustörf mættur til að hafa afskipti af ákærðu sem hræki í tvígang í andlit hans að því er segir í ákærunni.

Ákærða neitaði sök við þingfestingu í Héraðsdómi Reykjavíkur á dögunum. Aðalmeðferð í málinu fer fram þann 11. september. Brotið varðar 1. mgr 106. greinar almennra hegningarlaga. Þess er kraftist að ákærða verði dæmd til refsingar og greiðslu alls sakakostnaðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×