Innlent

Hræðsluáróður afturhaldssamra eða alltof mikill fórnarkostnaður?

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ritari Sjálfstæðisflokksins.
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ritari Sjálfstæðisflokksins. Vísir
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ritari Sjálfstæðisflokksins, og Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, eru á öndverðum meiði þegar kemur að umræðunni um að heimila sölu á áfengi í matvöruverslunum. Óhætt er að segja að skiptar skoðanir séu á málinu og tókust þau Áslaug og Kári á í Íslandi í dag í gærkvöldi.

„Þetta er auðvitað eðlilegt framfaramál, mál sem þarf að komast í gegn þótt þetta sé ekki forgangsmál hjá einum né neinum,“ sagði Áslaug Arna sem telur ekki hlutverk ríkisins að reka slíkan rekstur. Ótækt sé að það kosti ríkið háa fjármuni að reka verslanirnar eins og staðan sé nú.

Fréttaskýring:Bitist um brennivín í búðir frá aldamótum

Kári er sammála Áslaugu Örnu að ríkið þurfi ekki að sjá um sölu á áfengi. Hans forsendur eru þó nokkuð aðrar en Áslaugar.

„Mér finnst dálítil þversögn í því að ríki sem er að dæma menn í langar fangelsisvistir fyrir að selja eitt dóp sé að selja annað dóp. Ég held að það sé ekkert að því að ríkið selji ÁTVR eða einstakar verslanir,“ sagði Kári.

„Þetta mál er orðið útrætt og þarf ekkert að ræða það frekar. Það hlýtur að vera komið að því í lýðræðisþjóðfélaginu sem við búum í að fólk fari að vilja kjósa um þetta,“ sagði Áslaug Arna.

Vilhjálmur Árnason er þingmaður Sjálfstæðisflokksins og sá sem mælir fyrir frumvarpi um að koma áfengi í matvöruverslanir.VÍSIR/ANTON BRINK
Betra að selja ÁTVR en Landsbankann

Kári var alls ekki sammála því að málið hlyti að vera útrætt.

„Það er búið að sýna annars staðar að með því að flytja áfengi í matvöruverslanir eykurðu notkun og sölu og eykur þar af leiðandi þau heilsuvandamál sem af þeim stafa,“ sagði Kári.

„Fíknissjúkdómar, alkóhólismi og svipaðir sjúkdómar eru alvarlegustu sjúkdómar ungs fólks á Íslandi. Þetta er mjög alvarlegt heilsuvandamál. Það er mjög mikilvægt lýðheilsuverkefni að sjá til þess að áfengi fari ekki inn í matvöruveslanir.“

Kári benti á að þótt aðgengi sé nokkuð gott að áfengi á Íslandi þá sé það í sérstökum verslunum sem fólk fer inn í í þeim tilgangi að kaupa áfengi.

„Ef þú setur í matvöruverslanir verður það fyrir augunum á þeim sem að eru að reyna að halda sig frá áfengi en þurfa að fara inn í matvöruverslanir til að kaupa sér mat.“

Hins vegar megi alveg velta fyrir sér að ríkið selji verslanirnar. Það hefði líklega verið betri hugmynd en að selja Landsbankann að mati Kára. Áfengið ætti samt að vera í sérverslunum.

„Þetta er spurning um hvernig við hlúum að lösnu fólki í okkar samfélagi, ungu fólki í okkar samfélagi og reynum að koma í veg fyrir þann vanda sem hlýst af áfengissýki og annarri fíkn.“

Þessir mættu í ÁTVR þann 1. mars 1989 og keyptu sér bjór.Vísir/GVA
Sami hræðsluáróður og áður

Áslaug lýsti skoðunum Kára að einhverju leyti sem hræðsluáróðri, að fólk verði galið af því að fara inn í matvöruverslun og sjá áfengi.

Hræðsluáróðurinn væri á pari við það sem var í aðdraganda þess að bjórbanninu var aflétt, litasjónvörp komu á dagskrá og öðrum en ríkinu var leyft að vera með útvarpssendingar.

„Þetta er nákvæmlega sami hræðsluáróðurinn frá fólki sem er afturhaldssamt.“

Kári kallaði röksemdir Áslaugar hlægilegar og fáránlegar þar sem búið væri að sýna fram á að með tilfærslu í matvöruverslanir aukist sala. Það væri ekki fórnarkostnaður sem væri þess virði að færa að færa áfengið í matvöruverslanir til að spara ríkinu pening.

Áslaug var hins vegar þeirrar skoðunar að forvarnir og fræðsla væri ástæða þess að dregið hefði úr áfengisneyslu eins og tölur SÁÁ sýni.


Tengdar fréttir

Bitist um brennivín í búðir frá aldamótum

Frumvarp um frjálsa smásölu áfengis var fyrst lagt fram skömmu eftir aldamót. Deilt hefur verið um málið síðan þá og fjöldamörg frumvörp verið lögð fram sem öll hafa dagað uppi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×