Viðskipti innlent

Hræðist ekki komu H&M verslanakeðjunnar

Snærós Sindradóttir skrifar
Svava Johansen, eigandi NTC.
Svava Johansen, eigandi NTC. Mynd/Nína Björk
„Netverslun fer vaxandi en þetta eru svo ólíkir hópar. Það er einn hópur sem kaupir mikið á netinu og annar ekki. Hvort fyrri hópurinn muni halda áfram að stækka eða að þetta gangi til baka veit ég ekki,“ segir Svava Johansen, eigandi NTC, sem rekur ellefu fataverslanir og netverslun.

„Við spyrjum okkur að því hvort fólk hafi ekki líka félagslegar þarfir? Vill fólk sitja eitt eftir vinnu fyrir framan tölvuna og kaupa, eða vera á meðal fólks?“ Það er ekki aðeins netverslun sem ógnar fataverslun því H&M mun opna búðir hér á landi innan skamms. „Eflaust eru 25 prósent af öllum kvenfatnaði sem hefur verið keyptur erlendis úr H&M. Fjórðungur af veltu íslenskra kvenna fer þangað og það mun að hluta til skila sér heim.

Við erum ekkert að hræðast H&M en að sjálfsögðu erum við ekki sofandi á verðinum.“ Fyrr í vikunni var greint frá því að Topshop myndi hætta hér á landi. Svava segir að þar hafi mun sterkari samkeppnisaðili við NTC horfið af markaðnum.

Topshop hefur verið meiri keppinautur en H&M. Zara er það líka. Við vitum alveg að það er flott verslun að koma en við erum búin að greina hana og vitum hvað við þurfum að varast og hvar við erum í lagi.“ Hún segir að hún óttist ekki opnun H&M.

„Það er ekki stór hópur yfir þrítugt sem kaupir í H&M nema föt á börnin sín og svo einhverja boli, sokka og nærföt. En það fer ekkert þangað til að kaupa tösku eða skó. Ég held að fjöldi þeirra sem koma inn í verslunarmiðstöðvarnar verði meiri sem mun auka söluna í verslununum í kring,“ segir Svava. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu






Fleiri fréttir

Sjá meira


×