Körfubolti

Höttur snýr aftur í Domino's-deildina í kvöld

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Viðar Örn Hafsteinsson er á leið með Hött aftur upp í efstu deild.
Viðar Örn Hafsteinsson er á leið með Hött aftur upp í efstu deild. vísir/ernir
Höttur frá Egilsstöðum snýr aftur í Domino´s-deild karla í körfubolta í kvöld en liðið getur tryggt sér sigur í 1. deildinni þegar það mætir Ármanni í íþróttahúsi Kennaraháskólans klukkan 19.15.

Höttur er í efsta sæti 1. deildarinnar með 38 stig eftir 21 umferð af 24 en liðið er búið að vinna 19 leiki og tapa aðeins tveimur. Á eftir því koma Fjölnir með 34 stig og Valur með 32 stig en bæði lið geta mest náð 38 stigum.

Auðvelt er að bóka sigur Hattarmanna því Ármann er langlélegasta liðið í 1. deildinni. Það er búið að tapa öllum 22 leikjum sínum mjög stórt og er rótfast við botn deildarinnar án stiga.

Liðin mættust síðast tvo daga í röð um miðjan janúar þegar Ármann gerði sér ferð austur en þá unnu heimamenn 106-79 á föstudegi og 102-55 á laugardegi. Það er því fátt ef nokkuð sem kemur í veg fyrir endurkomu Hattar í Domino´s-deildina í kvöld.

Höttur hafnaði í neðsta sæti efstu deildarinnar á síðustu leiktíð með aðeins sex stig eins og FSu og féll niður um deild eftir eins árs dvöl á meðal þeirra bestu.

Liðið hélt einum sínum besta manni, Mirko Stefáni Virijevic, og bætti við sig Ragnari Gerald Albertssyni sem hefur spilað mjög vel. Þá er liðið með frábæran bandarískan leikmann, Aaron Moss, sem er að skora 24 stig að meðaltali í leik og gefa níu stoðsendingar.

Margir áhugamenn um Domino´s-deildina munu fagna endurkomu þjálfarans Viðars Arnar Hafsteinssonar í deild þeirra bestu á nýjan leik en hann varð algjör stjarna fyrir frábær svör í viðtölum á síðustu leiktíð.

Viðar er ekki nema 31 árs gamall og fínasta skytta en hann dró fram skóna á ný til að spila með liðinu í 1. deildinni. Hann er að skora átta stig að meðatali í leik á tæpum 17 mínútum en hann hefur hitt úr 33 prósent skota sinna fyrir utan teiginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×