Innlent

Hótelhrappurinn í haldi

Gissur Sigurðsson skrifar
Svikahrappur sem herjað hefur á hótel að undanförnu, með þeim hætti að greiða ekki reikninga, er nú í haldi lögreglu.
Svikahrappur sem herjað hefur á hótel að undanförnu, með þeim hætti að greiða ekki reikninga, er nú í haldi lögreglu. visir/stefán
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók á fjórða tímanum í nótt karlmann á fimmtugsaldri þegar hann reyndi að komast inn í hótel við Aðalstræti, en starfsfólk kannaðist við hann sem þekkan hrapp og varnaði honum inngöngu.

Hann reyndist vera á stolnu reiðhjóli en undanfarnar tvær vikur hefur maðurinn verið handtekinn daglega fyrir þjófnaði og veitingasvik víðsvegar í miðborginni. Hann hefur meðal annars leikið þann leik að panta sér dýrindis máltíðir á veitingastöðum, og svo neitað að greiða fyrir og reynst vera peningalaus. Hann hefur líka valdið ónæði á hótelum í miðborginni. Maðurinn er nú vistaður í fangageymslum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×