Innlent

Hótel, baðlón, skíðalyfta og gróðurhús í Hveradölum

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Skíðaskálinn er sagður áfram verða „sjálfstæð eining í endurbættri mynd“.
Skíðaskálinn er sagður áfram verða „sjálfstæð eining í endurbættri mynd“. vísir/pjetur
Skipulags- og umhverfisnefnd Ölfuss hefur heimilað að mikil uppbygging sem áætluð er við Skíðaskálann í Hveradölum fari áfram í lögboðið ferli.

Fram kemur í fundargerð nefnd­arinnar að byggt verði allt að 210 herbergja hótel og að gert verði 8.500 fermetra baðlón í botni Stóradals ásamt baðhúsi sem verður sambyggt hótelinu.

„Fyrirhugað er að nýta heitt affallsvatn sem fellur frá Hellisheiðarvirkjun sem er skiljuvatn eða úrgangsvatn sem verður endur­nýtt fyrir starfsemina,“ segir um baðlónið.

Þá er sagt fyrirhugað að setja upp skíðalyftu á sama svæði og gamla lyftan var á í Hveradölum og byggja aðstöðuhús við skíðabrekkuna. Byggja eigi gróðurhús sunnan við skíðaaðstöðuna. „Gróðurhús eða þjónustuhús gæti verið um 1.000 fermetrar með fjölbreytni í ræktunarmöguleikum og verslun og veitingar.“

Áætlað er að aðalbygging hótelsins verði þrjár hæðir með um 180 herbergjum og síðan verði annað hús með um 30 herbergjum.

„Nánast öll uppbyggingin er á röskuðu svæði sem hefur verið útivistarsvæði,“ segir skipulags- og umhverfisnefnd Ölfuss. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×