Sport

Hótar að taka ekki þátt á Ólympíuleikunum fái Rússar að vera með

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Sayers gæti fengið bronsverðlaun frá ÓL 2008 átta árum síðar.
Sayers gæti fengið bronsverðlaun frá ÓL 2008 átta árum síðar. vísir/getty
Enski spjótkastarinn Goldie Sayers segist hafa íhugað að draga sig úr keppni á Ólympíuleikunum í Ríó í ágúst fái Rússar að taka þátt á leikunum.

Rússneskir frjálsíþróttamenn eru sem stendur í banni frá alþjóðlegum keppnum eftir að upp komst um stórfellt og kerfisbundið lyfjamisferli hjá rússneska frjálsíþróttasambandinu.

„Ég myndi jafnvel ganga svo langt að segja að ég myndi ekki vilja keppa í Ríó ef Rússar verða með,“ sagði Sayers sem glímdi við meiðsli á Ólympíuleikunum í London fyrir fjórum árum.

„En ef þeim er heimiluð þátttaka og ég myndi ekki taka þátt væri ég að svíkja sjálfa mig um annað tækifæri á Ólympíuleikum,“ bætti hin 33 ára gamla Sayers við.

Maria Abakumova er einn þeirra 14 rússnesku íþróttamanna sem hafa verið nafngreindir í tengslum við lyfjamisferli á ÓL í Peking 2008.vísir/getty
Hún endaði í 4. sæti í spjótkastkeppninni á Ólympíuleikunum í Peking 2008 en svo gæti farið að hún fengi bronsverðlaunin átta árum seinna.

Hin rússneska Maria Abakumova, sem vann til silfurverðlauna, var ein af þeim 14 íþróttamönnum frá Rússlandi sem notuðu ólögleg lyf í Peking. Þetta kom í ljós eftir að sýni frá Ólympíuleikunum 2008 voru prófuð aftur með nýjustu tækni.

Rússneska sjónvarpsstöðin Match birti nöfn þessara 14 óhreinu Rússa en alþjóðaólympíunefndin ætlar að bíða með að opinbera þau þangað til próf á B-sýni viðkomandi íþróttafólks hefur verið framkvæmt.

Ef Abakumova verður svipt silfurverðlaunum falla þau í skaut hinnar þýsku Christinu Obergföll sem endaði í 3. sæti. Sayers myndi svo færast upp í hennar sæti og fá bronsverðlaunin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×