Innlent

Hóta lögbannskröfu á sumarhúsahlið

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Óeining er um uppsetningu hliðs á sumarhúsavegi við Sogið.
Óeining er um uppsetningu hliðs á sumarhúsavegi við Sogið. Fréttablaðið/HAG
Hart er deilt um uppsetningu hliðs á aðkomuvegi að tveimur sumarhúsasvæðum á Sogsbökkum.

„Ef svo ólíklega vildi til að aðilar innan Fljótsbakkasvæðisins myndu taka upp á því að setja upp hliðið við aðkomuveginn og brjóta þannig gegn sumarhúseigendum á Sogsbakka verður tafarlaust gripið til viðeigandi aðgerða í formi lögbanns og skaðabótamáls og hugsanlega kæru til lögreglu,“ segir í bréfi Félags landeiganda í Sogsbakka til Grímsness- og Grafningshrepps.

Sveitarstjórnin segir hlið ekki verða leyft nema allir séu sammála um uppsetninguna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×