Erlent

Hóta aftur kjarnorkuárásum

Samúel Karl Ólason skrifar
Stjórnvöld Norður-Kóreu hóta nágrönnum sínum í suðri reglulega.
Stjórnvöld Norður-Kóreu hóta nágrönnum sínum í suðri reglulega. Vísir/EPA
Stjórnvöld Norður-Kóreu hóta því að gera kjarnorkuárásir gegn nágrönnum sínum í suðri og Bandaríkjunum. Árlegar heræfingar Bandaríkjanna og Suður-Kóreu eru nú hafnar og þykir algengt að hótanir berist frá Norður-Kóreu vegna þeirra.

Þrátt fyrir hótanir Kim Jong-un og ríkisstjórnar hans, draga sérfræðingar í efa að Norður-Kórea búi yfir kunnáttu til að setja kjarnorkuvopn á eldflaugar. Þar að auki er ekki víst að þeir eigi nægilega traustar eldflaugar til að bera kjarnorkuvopn.

Stjórnvöld í Pyongyang segja æfingu Bandaríkjanna og Suður-Kóreu vera undirbúning fyrir innrás. Hóta þeir að gera árásir á Suður-Kóreu og herstöðvar Bandaríkjanna í Kyrrahafi og á meginland Bandaríkjanna.

Yfirlýsingu Norður-Kóreu má sjá hér.

Heræfingin árlega er sú stærsta sem hefur verið gerð og taka um 300 þúsund hermenn frá Suður-Kóreu þátt og um 17 þúsund frá Bandaríkjunum.

Á vef BBC kemur fram að fjölmiðlar í Suður-Kóreu segi að hluti æfinganna feli í sér að æfa árásir á leiðtoga Norður-Kóreu og eldflaugastöðvar þeirra.

Viðskiptaþvinganir gegn Norður-Kóreu voru hertar á dögunum, vegna kjarnorkuvopnatilrauna og er búist við því að Suður-Kórea muni kynna enn frekari aðgerðir á morgun.


Tengdar fréttir

Endurræsa kjarnakljúf

Yfirvöld Norður-Kóreu eru sögð geta komið upp vopnavæddu úraníumi á einungis nokkrum vikum.

Gætu fljótlega framleitt plútóníum

Bandaríska leyniþjónustan telur að stjórnvöld í Pjongjang hafi endurræst kjarnaofn sem hefur burði til að framleiða plútóníum í kjarnorkuvopn. Norður-Kóreumenn lýstu því yfir í september að kjarnorkuverið í Jongbjon hefði verið endurræst.

Norður Kóreumenn skutu eldflaugum á haf út í mótmælaskyni

Norður Kóreumenn skutu nokkrum skammdrægum eldflaugum í sjóinn undan ströndum landsins í nótt, að sögn suður kóreska varnarmálaráðuneytisins. Aðgerðir Norðanmanna koma aðeins nokkrum klukkustundrum eftir að Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna ákvað einróma að herða enn viðskiptabannið gegn ríkinu og hafa þær þvinganir aldrei verið harðari.

Kim Jong-un setur kjarnavopnin í viðbragðsstöðu

Kim Jong-un, leiðtogi Norður Kóreu, segir að kjarnorkuvopn ríkisins ættu að vera til taks hvenær sem er. Leiðtoginn ávarpaði æðstu menn hersins í gær þar sem hann skipaði þeim að breyta skipulagi sínu á þann veg að Norður Kórea geti skotið á loft kjarnorkusprengju í fyrirbyggjandi tilgangi eins og hann orðaði það. Frá þessu greinir ríkisfréttastofa landsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×