Erlent

Alþjóðlegir fjölmiðlar forðast umfjöllun

Guðsteinn Bjarnason skrifar
James Foley, bandaríski blaðamaðurinn, sem vígasveitir öfgamanna tóku af lífi í Írak.
James Foley, bandaríski blaðamaðurinn, sem vígasveitir öfgamanna tóku af lífi í Írak. Nordicphotos/AFP
Vígamennirnir, sem tóku bandaríska blaðamanninn James Foley af lífi, kalla sig riddara og segjast þjóna íslamska kalífadæminu í Írak og Sýrlandi.

Þeir hóta því að taka annan bandarískan blaðamann, Steven Sodloff, af lífi hætti bandaríski herinn ekki árásum sínum í norðanverðu Írak.

Samtökin Íslamskt ríki, sem hafa náð stórum svæðum í Írak og Sýrlandi á sitt vald, hafa lagt mikla áherslu á að nota sér vefmiðla til að koma málstað sínum á framfæri og afla sér liðsmanna víða um heim. Birting myndbandsins af aftöku James Foley er liður í þeirri baráttu, en það virðist hafa náð nokkurri útbreiðslu þótt það hafi verið snarlega tekið niður af Youtube-vefnum og lokað á það á Twitter.

Frá 8. ágúst síðastliðnum hafa Bandaríkin gert meira en 80 loftárásir á liðsmenn eða herbúnað Íslamska ríkisins. Meðal annars hefur sprengjum verið varpað á eftirlitsstöðvar, farartæki og vopnabúr samtakanna.

Bandaríkjamenn hafa einnig útvegað hersveitum Kúrda í norðanverðu Írak vopn til þess að verjast sókn vígasveita Íslamska ríkisins. Bretar, Frakkar og Þjóðverjar hafa einnig sagst ætla að senda vopn til Kúrda.

Kúrdar hafa á síðustu dögum náð að snúa vörn í sókn og náð aftur á sitt vald Mosul-stíflunni og fleiri svæðum sem Íslamska ríkið hafði náð á sitt vald.

Vígasveitir Íslamska ríkisins hafa sýnt miskunnarlausa grimmd gagnvart öllum, sem ekki vilja lúta í einu og öllu afar ströngum reglum þeirra um hegðun og hugarfar. Liðsmenn samtakanna víla ekki fyrir sér að drepa fólk af minnsta tilefni.

Talið er að í nágrannaríkinu Sýrlandi, þar sem samtökin Íslamskt ríki hafa einnig nokkuð stórt svæði á sínu valdi, sé um það bil tuttugu fréttamanna saknað. Ýmist eru þeir í haldi öfgamanna sem hóta að drepa þá eða þeim hefur verið rænt af hópum vígamanna sem vilja fá lausnargjald fyrir að sleppa þeim.

Alþjóðlegir fjölmiðlar hafa forðast að fjalla mikið um þetta, þótt einsdæmi sé að svo mörgum fréttamönnum hafi verið rænt á átakasvæðum. Óttast er að mikil umfjöllun geti torveldað mönnum að semja um lausn fréttamannanna.


Tengdar fréttir

Gerðu misheppnaða tilraun til að bjarga Foley

Bandarísk stjórnvöld hafa greint frá því að nýverið hafi verið skipulögð leynileg sendiför sérsveitamanna til Sýrlands til þess að freista þess að fresla bandaríska gísla sem eru í höndum íslamskra öfgamanna.

Obama fordæmir morðið á Foley

Barack Obama, Bandaríkjaforseti, segir morðið á bandaríska blaðamanninum James Foley, sem var afhöfðaður af meðlimum samtakanna Íslamskt ríki, vera hræðilegan verknað, sem hafi slegið alla heimsbyggðina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×