Erlent

Hóta að loka himninum yfir Suður-Kínahafi

Samúel Karl Ólason skrifar
Yfirvöld í Kína sögðu í dag að þeir hefðu rétt á því að koma upp lofvarnarsvæði yfir Suður-Kínahafi. Þrátt fyrir úrskurð Alþjóðagerðardómstólsins í gær um að Kína ætti ekki tilkall til hafsvæðisins. Kína hefur eignað sér um 90 prósent Suður-Kyrrahafs á grunni korts frá 1947.

Liu Zhenmin, aðstoðarutanríkisráðherra Kína, sagði að úrskurður gerðardómstólsins hefði engin áhrif á fullveldi Kína yfir hafsvæðinu. Á blaðamannafundi í morgun sagði hann einnig að ef loftvarnarsvæði yrði komið upp þyrftu allar flugvélar sem færu um svæðið að tilkynna ferðina til yfirvalda í Kína áður.

„Ef öryggi okkar er ógnað, höfum við auðvitað réttinn til þess að koma því upp. Við vonumst til þess að aðrar þjóðir noti ekki tækifærið til að ógna Kína og vinni þess í stað með Kína til að standa vörð um frið og stöðugleika í Suður-Kínahafi, svo deilurnar endi ekki í átökum.“

Sjá einnig: Kína á ekki tilkall til eyjanna í Suður-Kínahafi

Liu sakaði Filippseyjar, sem höfðuð málið gegn Kína, um að valda deilum í Suður-Kínahafi. Hann sagði að það myndi borga sig fyrir yfirvöld þar að eiga í samstarfi við Kína.

Sex þjóðir gera tilkall til mismunandi hluta svæðisins. Rík fiskimið eru á svæðinu og talið er að þar sé einnig að finna auðlindir eins og olíu. Um fimm billjónir dala virði af vörum eru fluttar um Suður-Kínahaf á ári hverju. Það samsvarar um 610 billjónum króna.

Hér má heyra Bjarna Má Magnússon, doktor í hafrétti, ræða um hvað deilan í Suður-Kínahafi snýst í Bítinu á Bylgjunni í morgun.

Tengdar fréttir

Kínverjar senda Bandaríkjunum tóninn

Þann 12. júlí mun Alþjóðlegi hafréttardómstóllinn í Hauge fella úrskurð í máli Filippseyja gegn Kína vegna Suður-Kínahafs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×