Innlent

Höskuldur vill að Bankasýslan hafi forgöngu um málsókn til að endurheimta Borgunarhlutinn

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
„Hinir raunverulegu hagsmunir málsins eru þeir að almenningur tapaði ekki bara verulegum fjármunum heldur ótrúlega miklum fjármunum sem hlaupa á milljörðum króna,“ sagði Höskuldur.
„Hinir raunverulegu hagsmunir málsins eru þeir að almenningur tapaði ekki bara verulegum fjármunum heldur ótrúlega miklum fjármunum sem hlaupa á milljörðum króna,“ sagði Höskuldur. Vísir/Vilhelm
Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokks, kallaði eftir því að Bankasýsla ríkisins myndi höfða dómsmál gegn þeim sem keyptu hlut Landsbankans í Borgun til að reyna að fá sölu hlutarins ógilda. Þetta sagði hann í umræðum um störf þingsins á Alþingi í morgun.

„Hinir raunverulegu hagsmunir málsins eru þeir að almenningur tapaði ekki bara verulegum fjármunum heldur ótrúlega miklum fjármunum sem hlaupa á milljörðum króna,“ sagði hann. Höskuldur vill að Bankasýslan leiti allra leiða til að sækja féð til núverandi eigenda Borgunar.

„Í bréfi Bankasýslunnar til bankaráðs Landsbankans kemur fram að telji Landsbankinn, eða hafi athugasemdir við upplýsingagjöf af hálfu annarra aðila í tengslum við sölumeðferð á eignarhlut í Borgun eigi bankinn að leita réttar síns ef hann telur tilefni til og ég held nefnilega að hér sé komið einmitt þetta tilefni,“ sagði hann.

Vitnaði Höskuldur næst í grein í Morgunblaðinu eftir hæstaréttarlögmanninn Hauk Örn Birgisson sem bendir á ákvæði í samningalögum sem heimilar endurskoðun á viðskiptum aðila, jafnvel ógildingu. „Hann vísar í dómafordæmi þar sem Hæstiréttur hefur bent á að sé verðmætið margfalt meira en endurgjaldið sé hægt að færa rök fyrir því að samningagerðin hafi verið byggð á brostnum eða röngum forsendum,“ segir hann.

„Ég tel einboðið að Landsbankinn höfði mál, geri það hið allra fyrsta og ég vil hvetja Bankasýsluna líka, því hún fer með eignarhlut ríkisins, að hún hafi forgöngu í málinu,“ sagði hann. „Þó að kostnaður við dómsmál geti hlaupið á einhverjum milljónum þá eru það smámunir miðað við þá gríðarlegu hagsmuni sem eru í húfi fyrir almenning í landinu.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×