Golf

Horschel vann BMW-meistaramótið

Anton Ingi Leifsson skrifar
Horschel í eldlínunni um helgina.
Horschel í eldlínunni um helgina. Vísir/Getty
Billy Horschel gerði sér lítið fyrir og vann BMW meistaramótið sem fram fór í Denver.

Bandaríkjamaðurinn Horschel spilaði hringinn í dag á 69 höggum eða hringina fjóra á 266 höggum samtals.

Næstur kom Bubba Watson, en hann lék á 66 í dag og samtals 268 höggum. Þriðji var Morgan Hoffmann þremur höggum á eftir Billy.

Rory McIlroy hefur oft spilað betur en hann gerði á þessu móti. Rory lenti í áttunda sæti, sex höggum á eftir Bandaríkjamanninu Horschel. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×