Horner ver ákeyrslu Vettels á meistarann Button

Vísir Formúlan 30. ágúst 2010 11:04
Sebastian Vettel fékk engin stig á Spa brautinni í gær.
Sebastian Vettel fékk engin stig á Spa brautinni í gær. Mynd: Getty Images
Christian Horner, framkvæmdarstjóri Red Bull kom Sebastian Vettel til varnar, en Vettel keyrði meistarann Jenson Button út úr keppninni á Spa brautinni í gær. Reyndi framúrakstur, en bíll hans snerist í bleytunni og lenti inn í hliðinni á McLaren Buttons.

"Ég efast ekkert um hæfileika Vettlels. Þetta bara gekk ekki upp hjá honum að þessu sinni. Hann þarf að vera rólegur og einbeittur, en þetta mun falla með honum einn daginn. Hann þurfti að taka augnabliks ákvörðun og hann gerði ein mistök í kapphlaupinu við Jenson", sagði Horner í frétt á autosport.com.

"Jenson bremsaði fyrr en Vettel átti von á og þegar hann reyndi að forðast hann, þá snerist bíllinn og skall á Jenson. Aðstæður voru erfiðar. Vettel er frábær ökumaður og ungur að árum og það er auðvelt að gagnrýna óreynda menn, en hann lærir á þessu."

Horner segir Vettel þroskaðan einstakling og að hann skoði í kjölinn hvað gerist og mæti tvíelfdur í slaginn í næsta mót. Horner segist ekki afskrifa titilmöguleika Vettels, þrátt fyrir óhappið í gær.

"Hlutirnir geta breyst hratt og Mark (Webber) hefur unnið fleiri mót en nokkur annar ökumaður og hefur ekið afar vel og er í sínu besta formi. Þetta lítur vel út hjá honum, en þetta getur breyst hratt og það væri ekki gáfulegt að afskrifa Sebastian eins og staðan er", sagði Horner.

Staðan í stigamótinu
1 Lewis Hamilton 182
2 Mark Webber 179
3 Sebastian Vettel 151
4 Jenson Button 147
5 Fernando Alonso 141
6 Felipe Massa 109
7 Robert Kubica 104
8 Nico Rosberg 102

Fleiri fréttir - Formúlan

Formúlan 10. feb. 2012 16:00

Aftur efasemdir um mótið í Barein - Ecclestone alveg sama

Vaxandi pressa hefur verið á skipuleggjendur Formúlu 1 mótarað...  

Meira
Formúlan 09. feb. 2012 20:30

Ferrari ósátt með nýja bílinn á æfingum

Tæknistjóri Ferrari liðsins, Pat Fry, sagðist ekki vera ánægður með stöðu Ferrari liðsins ...  

Meira
Formúlan 09. feb. 2012 19:09

Paul di Resta: Furðulegu bílarnir betri í ár

Skoski ökuþórinn Paul di Resta hjá Force India liðinu sagði í viðtali á Spáni í dag að nýj...  

Meira
Formúlan 09. feb. 2012 17:30

Rosberg fljótastur en heimsmeistarinn þriðji

Nico Rosberg á Mercedes bíl síðasta árs var fljótastur á þriðja degi æfinga á Jerez-brauti...  

Meira
Formúlan 08. feb. 2012 16:39

Schumacher fljótastur á æfingum dagsins

Michael Schumacher, á 2011 árgerð Mercedes bílsins, var fljótastur á æfingum F1 liða á Jer...  

Meira
Formúlan 06. feb. 2012 23:00

Barrichello íhugar tilboð frá Indy kappakstursliði

Rubens Barrichello hefur á undanförnum dögum tekið þátt í æfingaakstri hjá KV Racing Techn...  

Meira
Formúlan 06. feb. 2012 17:00

Hamilton yfirgefur Sviss og flytur til Mónakó

Breski formúluökumaðurinn Lewis Hamilton ætlar að flytjast búferlum frá Sviss til Mónakó e...  

Meira
Formúlan 05. feb. 2012 19:45

Hamilton: Ég missti alla einbeitingu á síðasta tímabili

Formúli 1 ökuþórinn Lewis Hamilton hefur nú stigið fram í sviðsljósið og viðurkennt að han...  

Meira
Formúlan 01. jan. 2012 23:15

Hamilton á sér leynda tónlistardrauma

Ökuþórinn og Formúlu 1-kappinn Lewis Hamilton er í enskum fjölmiðlum í dag sagður hafa var...  

Meira
Formúlan 23. des. 2011 13:00

Button: Finnst að okkar tími sé að koma

Jenson Button varð í öðru sæti í heimsmeistaramótinu í Formúlu 1 á þessu keppnistímabili á...  

Meira
Formúlan 22. des. 2011 10:15

Raikkönen: Býst við að fólk hafi saknað mín!

Kimi Raikkönen mætir aftur til keppni í Formúlu 1 á næsta ári, eftir tveggja ára hlé frá í...  

Meira
Formúlan 21. des. 2011 13:30

Alonso fagnar endurkomu Raikkönen

Fernando Alonso, ökumaður Ferrari fagnar því að Kimi Raikkönen er að fara keppa aftur í Fo...  

Meira
Formúlan 16. des. 2011 21:29

Hülkenberg og Di Resta keppa með Force India 2012

Force India Formúlu 1 liðið staðfesti í dag að Nico Hülkenberg og Paul Di Resta keppa með...  

Meira
Formúlan 16. des. 2011 15:15

Stanslaust hringt í nýliðann Vergne eftir ráðningu

Jean Eric Vergne verður nýliði sem keppnisökumaður í Formúlu 1 á næsta ári með Torro Rosso...  

Meira
Formúlan 15. des. 2011 11:00

Staða átta Formúlu 1 ökumanna óljós fyrir 2012

Vegna tilkynningar Torro Rosso um nýja ökumenn liðsins í gær, þá er ljóst að aðeins fjögur...  

Meira
Formúlan 15. des. 2011 02:47

Torro Rosso skiptir um keppnisökumenn fyrir næsta ár

Torro Rosso liðið ítalska hefur ákveðið að skipta um keppnisökumenn fyrir næsta keppnistím...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Sport / Formúlan / Horner ver ákeyrslu Vettels á meistarann Button