Gagnrýni

Hörkumynd

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Mission Impossible 4: Ghost Protocol - Tom Cruise
Mission Impossible 4: Ghost Protocol - Tom Cruise
Bíó. Mission: Impossible – Ghost Protocol

Leikstjórn: Brad Bird

Leikarar: Tom Cruise, Jeremy Renner, Simon Pegg, Paula Patton, Michael Nyquist, Vladimir Mashkov

Fyrsta Mission: Impossible-myndin var þrælfín og hafði bálkurinn alla burði til þess að verða langlíf og heilsteypt sería. Önnur myndin reyndist hins vegar mun slakari en sú fyrsta, og þriðja myndin var verri en þær báðar. Þegar ég sá fjórðu myndina auglýsta velti ég því fyrir mér hvort serían ætti afturkvæmt. Hvort þetta væri ekki búið spil hjá Ethan Hunt og félögum.

Það er þó fjarri lagi og teymið hefur líklega aldrei verið í betra stuði en einmitt í þessari fjórðu mynd seríunnar. Enn er það Hunt (Tom Cruise) sem leiðir hópinn en í hann hafa bæst við nokkur ný andlit. Simon Pegg er meira áberandi en í þriðju myndinni og er hann þrælskemmtileg viðbót við grúppuna. Cruise sjálfan verður æ erfiðara að taka alvarlega, í þessu hlutverki jafnt sem öðrum, en hann verður þó seint sakaður um að stýra seríunni með hangandi hendi. Í þessari mynd hangir hann til að mynda utan á Burj Kalifa-turninum í Dubai (hæstu byggingu heims), en að kvikmyndaleikari leggi slíkt á sig gerir það að verkum að maður neyðist hreinlega til að taka viljann fyrir verkið. Fyrir utan það að hann er ekki slæmur leikari þrátt fyrir undarlega hegðun í einkalífinu.

Cruise hefur veðjað á hárréttan leikstjórafák (Brad Bird, leikstjóra Ratatouille og The Incredibles) til að blanda brjáluðum áhættuatriðunum saman við léttan húmorinn. Glórulausu apparötin eru að sjálfsögðu til staðar og áhorfandinn vill trúa því að þau virki. Og líklega hef ég aldrei viljað jafn mikið að nokkuð virkaði og griphanskarnir sem Ethan Hunt klæðist þegar hann klífur fyrrnefndan hæsta turn heims. Það atriði er algjörlega lamandi sökum spennu.

Svona eiga hasarmyndir að vera. Hörkuspennandi, en þó án þess að taka sig of alvarlega. Það þurfti teiknimyndagerðarmann til að koma Mission: Impossible-seríunni í þann farveg og Ghost Protocol er besta mynd seríunnar.

Niðurstaða: Fjörugri en forverar hennar og alls ekki fyrir lofthrædda. Fjórar stjörnur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×