Skoðun

Horfðu í augun á mér og segðu að allt sé í lagi

Arndís Halla Jóhannesdóttir skrifar
Í uppvextinum lærum við mörg góð gildi sem okkur er ráðlagt að lifa eftir.  Eitt af því sem við lærum er að allt sem við segjum eða gerum hefur afleiðingar, okkur líður vel þegar við fáum hrós eða eitthvað fallegt er sagt við okkur, eins líður okkur illa þegar eitthvað ljótt er sagt við okkur eða þegar eitthvað er gert á okkar hlut.  Hver og einn einstaklingur hefur það vald að geta ákveðið hvernig hann vill koma fram við aðra, það er bara ég sem get ákveðið hvernig ég hegða mér, hvað ég segi og geri.

Ég hef gengið í gegnum tvær krabbameinsmeðferðir og þarf reglulegt eftirlit og nokkuð örar en gengur og gerist.  Á fimmtudaginn fór ég á Landspítalann þar sem ég átti tíma í segulómun, en það er tæki sem ég hef þurft að fara í miklu oftar en ég vildi. Þegar ég mætti fékk ég þær upplýsingar að það væri verkfall og því yrði engin segulómun í dag, það yrði kallað í mig þegar ég kæmist að.  Ég vildi óska að staðan væri sú að ég hefði gengið út af spítalanum pollróleg og haldið mínu striki en svo er ekki, ég táraðist á leið út í bíl, af því að nú vissi ég að óvissan og biðin eftir niðurstöðu væri bara einhvern tímann í framtíðinni.  Mér fannst ég beitt einhverju sem að mér var kennt í uppvextinum að væri rangt, þarna úti eru einhverjir sem er alveg sama um það hvort ég komist í segulómunina, eða hvað?

Mig langar að beina orðum mínum að því ágæta fólki sem situr hvorum megin við samningaborðið og og tala við hvern og einn: ,,Líttu í kringum þig, hugsaðu um þig og þína nánustu,  settu þig svo í spor þeirra sem þannig er komið fyrir að öryggi þeirra sé ógnað vegna þeirra aðgerða sem nú eru í gangi og þú ert einn/ein af þeim sem berð ábyrgð á því að þetta er raunin.“

Ég er svo heppin að starfa mikið með börnum og unglingum og margoft hef ég minnt þau á mikilvægi þess að senda aldrei frá sér skilaboð á samfélags- og samskiptamiðla sem eru þess eðlis að þau myndu ekki treysta sér til að horfa í augun á viðkomandi og segja það sem þau skrifa.

Ég myndi þakklát vilja horfa í augun á þeim sem vill útskýra fyrir mér og öllum hinum sem er ógnað þessa dagana að staðan í dag sé réttlætanleg á einhvern hátt.

Ég vona innilega að allt fari vel.

Baráttukveðjur,

Arndís Halla Jóhannesdóttir.




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×