Lífið

Horfði á HM í náttkjól

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
vísir/getty
Söngkonan Rihanna horfði á leik Þýskalands og Brasilíu í fjögurra liða úrslitum heimsmeistaramótsins í knattspyrnu með vinum sínum í New York í gær.

Rihanna horfði á leikinn í bleikum náttkjól sem vakti mikla athygli viðstaddra.

Rihanna heldur með Brasilíu á mótinu og var því miður sín eftir leikinn í gær en Þjóðverjar rústuðu Brasilíumönnum 7-1.

Það er því óvíst hvort söngstjarnan horfi meira á keppnina sem lýkur um helgina en Brasilíumenn gætu enn tryggt sér bronsið.

Í gallajakka við náttkjólinn.
Kósíföt.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×