Fótbolti

Hörður tryggði fyrsta sigurinn

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Hörður Björgvin Magnússon setur boltann smekklega yfir írska varnarvegginn og skorar sitt fyrsta mark fyrir íslenska landsliðið.
Hörður Björgvin Magnússon setur boltann smekklega yfir írska varnarvegginn og skorar sitt fyrsta mark fyrir íslenska landsliðið. vísir/getty
Ísland vann 0-1 sigur á Írlandi á Aviva-vellinum í Dublin í gær, í fyrsta leik þjóðanna í 20 ár. Þetta var jafnframt fyrsti sigur Íslands á Írlandi en hann kom í áttundu tilraun.

Eina mark leiksins kom á 20. mínútu. Kjartan Henry fiskaði þá aukaspyrnu rétt fyrir utan teig. Venjulega kemur það í hlut Gylfa Þórs Sigurðssonar að taka aukaspyrnur á þessum stað en þar sem Swansea-maðurinn var ekki með í gær steig Hörður Björgvin Magnússon fram.

Hann sveiflaði vinstri fætinum og setti boltann yfir varnarvegg Íra og í nærhornið, óverjandi fyrir Keiren Westwood, markvörð heimamanna. Glæsilegt mark og það fyrsta hjá Herði Björgvini fyrir íslenska landsliðið.

Heimir Hallgrímsson gerði átta breytingar á byrjunarliðinu frá sigrinum á Kósóvó á föstudaginn. Birkir Már Sævarsson, Ragnar Sigurðsson og Aron Einar Gunnarsson voru þeir einu sem héldu sætum sínum í byrjunarliðinu.

Leikurinn í gær var heldur rislítill og lítið fyrir augað. Færin voru engin og boltinn var mikið í loftinu.

Sigur Íslands var þó sanngjarn  á erfiðum útivelli. Holningin á íslenska liðinu var góð og varnarleikurinn til mikillar fyrirmyndar. Jón Daði Böðvarsson og Kjartan Henry Finnbogason voru afar vinnusamir í fremstu víglínu og kantmennirnir Rúrik Gíslason og Aron Sigurðarson voru duglegir að hjálpa bakvörðunum. Aron átti líka ágætis spretti í fyrri hálfleik en minna fór fyrir Rúrik þegar íslenska liðið var með boltann.

Sóknarleikur Íranna var einhæfur en það eina sem þeir buðu upp á voru endalausar fyrirgjafir sem íslensku miðverðirnir réðu vel við. Sverrir Ingi Ingason var gríðarlega öflugur og spilaði sinn besta landsleik til þessa.

Líkt og í leiknum gegn Kósóvó gekk Íslandi heldur illa að halda boltanum innan liðsins. Þó brá fyrir einstaka samleiksköflum í fyrri hálfleik, þótt þeir hefðu mátt vera fleiri.

Það var meiri kraftur í Írunum í seinni hálfleik en þeir ógnuðu ekki neitt. Bæði vantaði hugmyndaauðgi í sóknarleik þeirra og þá varðist íslenska liðið mjög vel. Til marks um það átti Írland ekki eitt einasta skot á íslenska markið í leiknum.

Heimir Hallgrímsson getur vel við unað eftir landsleikina tvo í vikunni. Báðir unnust þeir og varnarleikurinn í þeim var sterkur. Sóknarleikur íslenska liðsins hefur þó oft verið betri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×