Fótbolti

Hörður Björgvin og félagar með mikilvægan sigur

Anton Ingi Leifsson skrifar
Hörður í leik með Cesena.
Hörður í leik með Cesena. vísir/getty
Hörður Björgvin Magnússon spilaði allan leikinn fyrir Cesena sem vann 1-0 sigur á Novara í ítölsku B-deildinni í dag.

Leikurinn var mikilvægur fyrir þær sakir að liðin berjast um umspilssæti í ítölsku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð.

Eina mark leiksins kom á fimmtándu mínútu þegar Antonio Ragusa skoraði og tryggði Cesena sigurinn, en þeir léku einum fleiri síðustu þrettán mínúturnar.

Cesena er nú í sjötta sætinu, þremur stigum á undan Novara sem er í því níunda, en lið þrjú til átta fara í sumspil um sæti í úrvalsdeildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×