Körfubolti

Hörður Axel með fimm stig í sigri Aries Trikala

Hörður Axel og félagar fóru með sigur af hólmi í dag en eiga enn á hættu að falla.
Hörður Axel og félagar fóru með sigur af hólmi í dag en eiga enn á hættu að falla. vísir/daníel
Hörður Axel Vilhjálmsson skoraði fimm stig þegar lið hans Aries Trikala vann Lavrio GA í grísku úrvalsdeildinni í körfuknattleik, xx-xx. En auk þess að skora fimm stig tók Hörður Axel fjögur fráköst og átti tvær stoðsendingar á þeim rétt rúmu 30 mínútum sem hann spilaði.

Aries Trikala er í þriðja neðsta sæti deildarinnar með 33 stig þegar ein umferð er eftir og enn í bullandi fallhættu. Næsta lið fyrir neðan, Koroivos, er með 32 stig en bæði lið eiga heimaleik í síðustu umferð. Þar tekur Aries Trikala á móti Apollo II. Carna á sama tíma og Koroivos fær Lavrio GA í heimsókn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×