Bíó og sjónvarp

Hörð viðbrögð aðdáenda leiddu til breytinga á væntanlegri Justice League-mynd

Birgir Olgeirsson skrifar
"Þegar Batman v Superman kom út hugsaði ég: Vá, ókei, úff,“ sagði leikstjórinn Zack Snyder við fjölmiðla.
"Þegar Batman v Superman kom út hugsaði ég: Vá, ókei, úff,“ sagði leikstjórinn Zack Snyder við fjölmiðla.
Fjölmiðlar fengu að líta við á tökustað Justice League-myndarinnar þar sem stærstu ofurhetjum DC-myndasagnaheimsins er att saman. Í vor fengu áhorfendur nasaþefinn af þessari mynd í Batman V. SupermanDawn of Justice þar sem þessar tvær ofurhetjur börðust við hvor aðra áður en þær tóku höndum saman til að berjast gegn sameiginlegum óvini.

Sú mynd hlaut hrikalegar viðtökur hjá gagnrýnendum og voru aðdáendur myndasagnanna alls ekki sáttir. Leikstjóri myndarinnar er Zack Snyder en hann ræður einnig ríkjum við tökur á Justice League. Hann sagði við fjölmiðla í dag að hann hefði tekið mið af slæmum umsögnum og breytt tóni Justice League-myndarinnar sem er væntanleg í kvikmyndahús í nóvember árið 2017.

„Þegar Batman v Superman kom út hugsaði ég: Vá, ókeiúff,“ sagði Snyder við Vulture um gagnrýni sem myndin fékk. „Þetta kom mér á óvart. Ég hef þurft að gera breytingar. Ég held að tónn Justice League hafi breyst vegna þess hvernig aðdáendur tóku Batman v Superman.“

Gagnrýnendur voru á einu máli þess efnis að Batman v Superman hefði verið laus við alla gleði en Snyder sagði þennan dökka tón tilkominn vegna þess að hetjurnar háðu innbyrðis baráttu. Í Justice League munu þær berjast gegn sameiginlegum óvini og því muni tónninn breytast. 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×