Fótbolti

Hópurinn sem mætir Króatíu: Hvorki Alfreð né Kolbeinn verða með

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Alfreð Finnbogason er meiddur.
Alfreð Finnbogason er meiddur. vísir/anton brink
Hvorki Alfreð Finnbogason né Kolbeinn Sigþórsson verða með íslenska landsliðinu í fótbolta þegar það mætir Króatíu í Zagreb í undankeppni HM 2018 annan laugardag og Möltu í vináttuleik þremur dögum síðar.

Heimir Hallgrímsson tilkynnti landsliðshópinn á blaðamannafundi í höfuðstöðvum KSÍ í dag en áfram eru meiðsli að hrella landsliðið í undankeppni HM. Strákarnir okkar eru með sjö stig eftir þrjá leiki en þeir unnu Finna og Tyrki í síðasta verkefni sem voru tveir heimaleikir.

Heimir valdi 23 leikmenn í hópinn eða einum manni færri en í hópinn sem mætti Finnlandi og Tyrklandi í síðasta mánuði. Tveir leikmenn detta út frá síðasta hóp eða þeir Alfreð Finnbogason og Haukur Heiðar Hauksson.

Framherjarnir tveir eru frá vegna meiðsla en Kolbeinn Sigþórsson er ekki enn þá búinn að spila mínútu í undankeppninni og þá er hann ekki enn farinn af stað með Galatasaray í Tyrklandi vegna sömu meiðsla.

Alfreð Finnbogason hefur farið á kostum í undankeppninni en hann er búinn að skora í öllum þremur leikjum Íslands til þessa og er einn af markahæstu leikmönnum undankeppninnar með þrjú mörk. Hann hefur aftur á móti ekki spilað fyrir lið sitt Augsburg síðan hann meiddist í sigrinum á Tyrkjum í síðasta mánuði.

Elías Már Ómarsson, markahæsti leikmaður 21 árs landsliðsins í síðustu undankeppni, er kominn inn í hópinn en hann hefur spilað mjög vel með IFK Gautaborg í sænsku deildinni. Elías Már er einn af fjórum framherjum íslenska liðsins en hinir eru Jón Daði Böðvarsson, Viðar Kjartansson og Björn Bergmann Sigurðarson.

Emil Hallfreðsson getur tekið þátt í þessum verkefnum en hann var ekki leikfær í síðustu verkefnum þótt að hann hafi verið valinn í hópinn þá.

Leikurinn gegn Króatíu fer fram í Zagreb 12. nóvember.

Hópurinn:

Markverðir:

Hannes Þór Halldórsson, Randers FC

Ögmundur Kristinsson, Hammarby

Ingvar Jónsson, Sandefjord

Varnarmenn:

Birkir Már Sævarsson, Hammarby

Ragnar Sigurðsson, Fulham

Kári Árnason, Malmö

Ari Freyr Skúlason, Lokeren

Sverrir Ingi Ingason, Lokeren

Hörður Björgvin Magnússon, Bristol City

Hólmar Örn Eyjólfsson, Rosenborg

Miðjumenn:

Aron Einar Gunnarsson, Cardiff City

Emil Hallfreðsson, Udinese

Birkir Bjarnason, FC Basel

Jóhann Berg Guðmundsson, Burnley

Gylfi Þór Sigurðsson, Swansea City

Theódór Elmar Bjarnason, AGF

Ólafur Ingi Skúlason, Karabukspor

Rúnar Már Sigurjónsson, Grasshopper

Arnór Ingvi Traustason, Rapid Vín

Sóknarmenn:

Jón Daði Böðvarsson, Wolves

Viðar Kjartansson Maccabi, Tel Aviv

Elías Már Ómarsson, IFK Gautaborg

Björn Bergmann Sigurðarson, Molde




Fleiri fréttir

Sjá meira


×