Glamour

Hönnuðirnir sem klæddu flestar stjörnurnar á rauða dreglinum

Ritstjórn skrifar
Tískuhúsin keppast um að fá að klæða stjörnurnar.
Tískuhúsin keppast um að fá að klæða stjörnurnar. Mynd/Samsett
Þegar að það kemur að rauða dreglinum fyrir stærstu verðlaunahátíðir ársins keppast hönnuðir um að fá að klæða stjörnurnar. Það eru yfirleitt stærri tískuhúsin sem að bera af í fjölda kjóla á dreglinum enda oft erfitt fyrir ung og upprennandi tískuhús að komast að. 

Þetta árið voru það þrjú tískuhús sem báru af:

Gucci

Gucci er í þriðja sætið yfir tískuhúsin sem klæddu flestar stjörnurnar. Konurnar sem klæddust Gucci eru eftirfarandi:

Á Golden Globes: Felicity Jones, Jill Soloway og Zoe Saldana

Á SAG verðlaununum: Nicole Kidman og Salma Hayek

Á BAFTA verðlaununum: Anya Taylor Joy, Naomie Harris

Á Óskarnum: Dakota Johnson

 

 

Myndir/Getty
Louis Vuitton

Franska tískuhúsið er í öðru sæti. Konurnar sem Louis Vuitton klæddi fyrir rauða dregilinn eru:

Á Golden Globes: Michelle Williams, Ruth Negga og Sophie Turner

Á SAG verðlaununum: Sophie Turner og Michelle Williams

Á BAFTA verðlaununum: Michelle Williams og Sophie Turner

Á Óskarnum: Michelle Williams og Alicia Vikander

 

 

Myndir/Getty
Armani

Armani hreppir fyrsta sætir yfir þau tískuhús sem hönnuðu flesta kjólanna fyrir rauða dregilinn á stærstu verðlaunahátíðum ársins. Konurnar sem Armani klæddi eru:

Á Golden Globes: Janelle Monáe, Sophia Stallone, Isabelle Huppert, Naomie Harris og Teresa Palmer

Á SAG verðlaununum: Millie Bobby Brown

Á BAFTA verðlaununum: Nicole Kidman

Á Óskarnum: Nicole Kidman, Emma Roberts, Isabelle Huppert og Viola Davis










×