Tíska og hönnun

Hönnuðir leika sér að kynjahlutverkunum

Gunnhildur Jónsdóttir skrifar
Riccardo Tisci hjá Givenchy sendi fyrirsæturnar niður pallinn í pilsum
Riccardo Tisci hjá Givenchy sendi fyrirsæturnar niður pallinn í pilsum
Tískuvikur karla fyrir vorið 2016 hafa verið í fullum gangi seinustu vikurnar og lauk sýningunum í París um helgina.

Stærstu merkin í bransanum sýndu föt og það var margt sem stóð upp úr. Sýningar hafa verið haldnar í London, Mílanó og París og verða svo loksins í New York þann 13. júlí.

Það birtast yfirleitt ekki margar fréttir frá tískuvikum karla en hönnuðir eru að taka við sér og hafa verið að leika sér meira með karlatískuna.

Það sem stóð upp úr var að margir hönnuðir léku sér að kynjahlutverkunum. Áberandi margir hönnuðir á borð við Givenchy, Gucci og Hood By Air sendu fyrirsæturnar niður pallinn í pilsum.

Athygli vakti einnig hversu margar kvenfyrirsætur voru með í sýningunum og veltu margir upp spurningunni hvort það væri enn þörf fyrir aðskildar tískuvikur fyrir konur og karla. Karlar ganga oft pallinn á kvennatískusýningum. Tískuhúsin gætu sparað sér góða summu á þeim breytingum en tískuvikur kvenna hefjast í september.

Afslöppuð og íþróttaleg snið eru enn þá áberandi sem og strigaskór, en það er stíll sem eflaust margir eru ánægðir með.

Það voru nokkrir hönnuðir sem sóttu innblástur til sjötta áratugarins með háum buxum og bundnum jökkum en það var mest áberandi hjá Kenzo og Umit Benan.


Tengdar fréttir

Hápunktar tískuvikunnar í Stokkhólmi

Tískuvikan í Stokkhólmi stóð yfir frá mánudegi til miðvikudags í vikunni. Þar sýndu helstu fatahönnuðir Svía haust – og vetrarlínur sínar, en Svíar eru þekktir fyrir að standa mjög framarlega á sviði hönnunar og tísku.

hausttíska kynnt í Köben

Það kenndi ýmissa grasa á tískuvikunni í Kaupmannahöfn sem lauk á sunnudag. Kynnt var hausttíska þessa árs og eru tískusérfræðingar á einu máli um að fjölbreytileikinn hafi verið í fyrirrúmi. Að vanda fengu nýir hönnuðir að láta ljós sitt skína.

Fagurt handbragð í París

Sýningar á Haute Couture, eða hátískunni eins og það nefnist á íslensku, fara fram þessa dagana í París. Sýningarnar, sem gefa sköpunargáfu hönnuða frjálsan tauminn, einkennast af fáguðu handbragði og íburðarmiklum flíkum fyrir veturinn 2011.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×