Fótbolti

Höness: Eyðsla kínversku liðanna er sjúk

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Höness var endurkjörinn forseti Bayern í nóvember á síðasta ári.
Höness var endurkjörinn forseti Bayern í nóvember á síðasta ári. vísir/getty
Uli Höness, forseti Bayern München, segir að eyðsla fótboltaliða í Kína sé sjúk.

Miklir peningar eru í fótboltanum í Kína og þarlend lið eyða gríðarlega háum fjárhæðum í leikmannakaup.

Shanghai SIPG keypti Brasilíumanninn Oscar frá Chelsea fyrir 60 milljónir punda á dögunum og í gær bárust fréttir af því að félagið hafi boðið Borussia Dortmund tæpar 130 milljónir punda fyrir framherjann Pierre-Emerick Aubameyang.

„Þetta er sjúkt, þetta er ekkert annað en sjúkt,“ sagði Höness í viðtali í tilefni af 65 ára afmæli hans.

„Vonandi verður þetta bara tímabil eins og var í Bandaríkjunum á sínum tíma,“ bætti Höness við og vísaði þar til NASL-deildarinnar svokölluðu, þangað sem stórstjörnur á borð við Franz Beckenbauer, George Best, Pele og Gerd Müller fóru á áttunda áratugnum.

„Á þeim tíma vildu félög á borð við New York Cosmos nota peninga til að byggja upp á fimm árum það sem tók önnur félög 50 ár að gera,“ sagði Höness sem var endurkjörinn forseti Bayern í nóvember á síðasta ári.

Oscar fékk höfðinglegar móttökur við komuna til Shanghai.vísir/getty

Tengdar fréttir

Skiptir út ítalska draumnum fyrir kínverska gullið

Belgíski landsliðsmaðurinn Alex Witsel virðist ætla að fylgja gullgrafaræðinu og semja við lið í kínversku deildinni í stað þess að semja við ítölsku meistarana í Juventus.

Oscar búinn að tryggja sér Kínagullið

Oscar er orðinn leikmaður kínverska liðsins Shanghai SIPG en félagið hefur staðfest að það hafi náð samkomulagi við Chelsea um kaup á leikmanninum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×