Formúla 1

Honda klárar uppfærsluskammtana í Rússlandi

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Fernando Alonso fannst aflskortur Honda vélarinnar ekkert fyndinn í Japan.
Fernando Alonso fannst aflskortur Honda vélarinnar ekkert fyndinn í Japan. Vísir/Getty
Fernando Alonso, annar ökumanna McLaren-Honda liðsins mun nota ný uppfærða vél í rússneska kappakstrinum um helgina. Liðsfélagi hans, Jenson Button notar gömlu vélina.

Honda telur sig hafa náð töluverðum framförum hvað varðar hönnun vélarblokkarinnar. Alonso mun í kjölfarið hljóta tíu sæta refsingu eftir tímatökuna, enda kominn langt upp fyrir leyfilegan fjölda véla á árinu. Þessi nýja vél verður hans tíunda á árinu. Reglurnar heimila einungis fjórar nýjar vélar yfir tímabilið, refsilaust.

Japanski framleiðandinn átti fjóra skammta eftir til að uppfæra vélina. Þeir eru nú uppurnir. Tímaskortur er ástæða þess að einungis annar ökumaður McLaren-Honda fær að prófa nýju vélina.

Alonso gagnrýndi Honda vélina harkalega yfir talstöðina í síðustu keppni, á heimavelli Honda. Hann sagði „Þessi vél á heima í GP2, argh, þetta er vandræðalegt.“

Hugsanlega hættir Alonso að fara hjá sér með nýju vélina um borð. Honda og Mercedes hafa nú klárað uppfærsluskammta sína þetta tímabilið. Renault á alla 12 eftir en Ferrari á fjóra eftir.


Tengdar fréttir

Lewis Hamilton vann í Japan

Lewis Hamilton kom fyrstur í mark í japanska kappakstrinum. Liðsfélagi hans, Nico Rosberg varð annar og Sebastian Vettel á Ferrari þriðji.

Brösótt endurkoma Honda

Yfirmaður kappakstursmála hjá vélaframleiðandanum Honda segir að endurkoman í Formúlu 1 hafi ekki gengið sem skyldi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×