Formúla 1

Honda á tvær uppfærslur eftir á árinu

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Yusuke Hasegawa og Fernando Alonso ræða málin.
Yusuke Hasegawa og Fernando Alonso ræða málin. Vísir/Getty
Honda, japanski vélaframleiðandinn sem sér McLaren liðinu fyrir vélum í Formúlu 1 segist eiga eftir að uppfæra vélina tvisvar á árinu. Eftir það beinist athyglin að 2017.

Honda vill reyna til þrautar að ná í skottið á keppinautum sínum, Renault, Mercedes og Ferrari sem allir framleiða vélar sem líklegast eru betri en Honda vélin. Japanski vélaframleiðandinn kom seint inn í 1,6 lítra túrbó tímabilið og hefur enn ekki tekist að komast á par við keppinautana.

Honda hefur vissulega náð framförum á árinu og þá sérstaklega með uppfærslu á sprengimótor sínum. Sú uppfærsla hefur fært McLaren liðið í stigasæti æ oftar.

Yusuke Hasegawa, yfirmaður vélamála hjá Honda sagði í samtali við Autosport að ætlunin væri að uppfæra vélina tvisvar í viðbót á árinu og nota þar með þá 10 uppfærsluskammta sem Honda á eftir á í ár. Skammtakerfinu verður breytt eftir tímabilið til að gera stærri breytingar og meiri framfarir mögulegar.

Eftir uppfærslurnar tvær mun Honda snúa sér að næsta tímabili.

„Það er mitt stærsta verkefni um þessar mundir að átta mig á því hvenær er rétt að beina athyglinni að næsta ári. Ég hef ekki enn gefið upp vonina um að ná árangri í ár. Kannski snúum við okkur að næsta ári í þessum mánuði, en ég hef ekki enn tekið þá ákvörðun,“ sagði Hasegawa.


Tengdar fréttir

Kvyat: Hættur að njóta mín í Formúlu 1

Daniil Kvyat viðurkennir að hann hafi hætt að njóta sín í Formúlu 1 eftir stöðulækkun til Toro Rosso. Hann telur að óánægja sín hafi áhrif á frammistöðu sína.

Mallya: Litlar breytingar væntanlegar eftir sumarfrí

Force India gerir ekki ráð fyrir miklum breytingum í goggunarröð Formúlu 1 liða eftir sumarfrí. Ástæðuna fyrir þessu segir liðsstjórinn Vijay Mallya, vera að liðin einbeiti sér að breytingum næsta árs.

Alonso spenntur fyrir bílum næsta árs

Fernando Alonso ökumaður McLaren liðsins í Formúlu 1 spáir því að bílar næsta árs vekji hrifningu ökumanna. Hann gerir ráð fyrir því að þeir eigi eftir að virka vel fyrir ökumenn og áhorfendur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×