Innlent

Holtavörðuheiði lokað vegna umferðaslysa

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Holavörðuheiði er lokuð vegna slysa.
Holavörðuheiði er lokuð vegna slysa. Vísir/TLT
Þjóðvegur 1 um Holtavörðuheiði er lokaður vegna umferðaróhappa á heiðinni, en unnið er að opnun vegarins að nýju.

Að sögn lögreglunnar á Blönduósi var um að ræða tvö aðskilin umferðaróhöpp, árekstur fjögurra bíla annars vegar og tveggja bíla hins vegar.

Ekki fengust upplýsingar um hvort alvarleg slys hafi orðið á fólki, en einhverjir voru fluttir á slysadeild til aðhlynningar. Afar slæm færð er á Holtavörðuheiði þessa stundina en búist er við að það lægi síðdegis.

Uppfært 18.15. Búið er að opna veginn á nýjan leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×