Innlent

Holtavörðuheiði lokað og flugi aflýst

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Ófært er víða um land.
Ófært er víða um land. Vísir/Vilhelm
Veginum um Holtavörðuheiði hefur verið lokað vegna ófærðar og öllu innanlandsflugi hjá Flugfélagi Íslands hefur verið aflýst.

Nokkrir bílar eru fastir á Holtavörðuheiði og eru björgunarsveitir frá Borgarnesi og Borgarfirði á leið til að aðstoða ökumenn sem þar sitja fastir. Einnig hefur allmörgum fjallvegum verið klokað vegna veðurs en búið er að loka vegunum um Steingrímsfjarðarheiði, Holtvörðuheiði, Þverárfjalli, Hófaskarði, Mývatns- og Möðrudalsöræfum og á Vopnafjarðarheiði.

Þá hefur öllu innanlandsflugi hjá Flugfélagi Ísland í kvöld verið aflýst en fljúga átti til Ísafjarðar, Akureyrar og Egilsstaða frá Reykjavík og frá þessum bæjum til Reykjavíkur.

Von á 40-45 m/s hviðum

Von er á vonskuveðri víða um land í kvöld. Hægfara lægð er nú fyrir austan land og er hún dýpri en spáð var. 

Hún mjakast suður með Austfjörðum í nótt. Hvessir mjög austanlands nú síðdegis og með hríðarveðri austur um á miðja Austfirði.

Um leið hvessir suðaustanlands og reikna má staðbundið með mjög byljóttum vindi og hviðum allt að 40-45 m/s frá Lómagnúpi og austur um á sunnanverða Austfirði. Við þessar aðstæður gerir sandfok í þurri N-áttinni, m.a. úr Skaftárfarvegi og á Skeiðárásandi. Lægir ekki að gagni fyrr en komið er vel fram á morgundaginn.

Á Vestfjörðum og vestantil á Norðurlandi minnkar ofankoman og éljagangur fljótlega í kvöld en áfram verður skafrenningur fram á nóttina, einkum á fjallvegum.

Færð og aðstæður

Vegir eru að mestu auðir á Suðurlandi en þó er snjóþekja á Lyngdalsheiði.

Á Vesturlandi eru hálkublettir á flestum fjallvegum en greiðfært á láglendi. 

Vetrarfærð er nú á Vestfjörðum og ófært á Klettshálsi og lokað á Steingrímsfjarðarheiði og Þröskuldum. Ófært er einnig á Hrafnseyrar- og Dynjandisheiði.

Það eru hálkublettir eða snjóþekja á fjallvegum á Norðurlandi vestra og snjóþekja og óveður á Sigufjarðarvegi. Lokað er yfir Holtavörðuheiði og Þverárfjall. Á Norðausturlandi er versnandi veður og þæfingsfærð á Hólaheiði og Sandvíkurheiði og búið að loka veginum í Hófaskarði. Eins er búið að loka veginum yfir Mývatns- og Möðrudalsöræfi.

Á Austurlandi er þæfingsfærð á Fjarðarheiði og á Vatnsskarði eystra og hálkublettir á Fagradal en greiðfært er á láglendi. Greiðfært er einnig með suðausturströndinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×