Fótbolti

Hólmfríður meidd og missir af landsleiknum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/AFP
Elín Metta Jónsdóttir, leikmaður Vals, hefur verið valin í landslið Íslands fyrir æfingaleikinn gegn Hollandi á laugardaginn en hann fer fram í Kórnum í Kópavogi.

Elín Metta tekur sæti Hólmfríðar Magnúsdóttur, leikmanni Avaldsnes í Noregi, sem á við meiðsli að stríða og þurfti því að draga sig úr landsliðshópi Íslands.

Næsta stóra verkefni íslenska landsliðsins verður undankeppni EM 2017 en hún hefst í haust.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×