Fótbolti

Hólmfríður hetja Avaldsnes

Anton Ingi Leifsson skrifar
Hólmfríður og Þórunn Helga gátu fagnað stigunum þremur í dag.
Hólmfríður og Þórunn Helga gátu fagnað stigunum þremur í dag. vísir/getty
Hólmfríður Magnúsdóttir skoraði tvö mörk í fyrsta leik Avaldsnes í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Avaldsnes sigraði þá Arna Bjørnar 3-2.

Avaldsnes lenti undir eftir sex mínútna leik, en jöfnuðu þó mínútu síðar. Hólmfríður kom Avaldsnes yfir á 20. mínútu og þannig var staðan í hálfleik.

Þegar fjórar mínútur voru liðnar af síðari hálfleik skoraði Hólmfríður annað mark sitt og þriðja mark Avaldsnes.

Arna-Bjørnar náði að klóra í bakkann rétt fyrir lok leiksins, en lokatölur 3-2. Góð byrjun á tímabilinu hjá Avaldsnes og Hólmfríði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×