Fótbolti

Hólmbert skoraði fyrir Bröndby

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
mynd/heimasíða Bröndby
Bröndby er komið áfram í dönsku bikarkeppninni eftir sigur á C-deildarliðinu Fremad Amager í kvöld, 3-1.

Hólmbert Aron Friðjónsson skoraði þriðja mark Bröndby á 70. mínútu, tíu mínútum eftir að hann kom inn á sem varamaður.

Fyrr í kvöld komst Randers áfram eftir sigur á Lyngby en Ögmundur Kristinsson og Theodór Elmar Bjarnason eru á mála hjá fyrrnefnda liðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×