Hólmarar kveðja plastpokana Svavar Hávarðsson skrifar 16. júní 2014 07:00 Menja Von Schmalensee
Stefnt er að því að gera Stykkishólm að fyrsta sveitarfélaginu á Íslandi þar sem burðarplastpokar munu ekki fást í verslunum. Tilraunaverkefni sem hefur þetta að markmiði lýtur einnig að því að þekkingin sem fæst í sumar nýtist öðrum sveitarfélögum til að fylgja í kjölfarið. Menja von Schmalensee, líffræðingur og formaður umhverfishópsins, segir að skili verkefnið tilætluðum árangri muni Hólmarar hætta notkun á burðarplastpokum í öllum verslunum í sveitarfélaginu í byrjun september. Spurð um viðbrögð fólks í sveitarfélaginu segir Menja þau almennt góð, en mikið vatn eigi enn eftir að renna til sjávar áður en hægt verði að fullyrða um árangur verkefnisins.eftir skemmtanahald Allir Íslendingar þekkja myndir sem þessa og hlut plastsins í ruslaraskap landans. fréttablaðið/daníelUndirbúningsvinnan sé vissulega hafin og gengur vel, en áður en umskiptin fara fram verði að svara því hvað koma eigi í staðinn fyrir plastið. Bæði er þörf fyrir lausnir fyrir verslun og ekki síður við sorplosun. Varðandi innkaupin kemur margt til greina, s.s. fjölnota pokar, pappírspokar og maíspokar. Þegar kemur að sorplosun hefur hópurinn leitað samstarfs við Íslenska gámafélagið, og geta maíspokar verið góð lausn í þeim efnum. Einstakar verslanir hafa tekið hópnum vel, en hafa skal hugfast að stjórnendur verslana í Stykkishólmi sitja oft í Reykjavík, t.d. Vínbúðarinnar, Lyfju og Bónuss. Þess vegna teygir verkefnið sig vel út fyrir bæjarmörkin. Menja segir að verkefnið snúist ekki síst um hugarfarsbreytingu, og sé hugsað í mun stærra samhengi en bara fyrir Stykkishólm. Styrkur ráðuneytisins fékkst t.d. á þeim forsendum að vinnan myndi nýtast á fleiri stöðum í framhaldinu, sem segir nokkuð um vilja stjórnvalda um hvað koma skal. „Vonin er að verkefnið muni nýtast öðrum til að taka þetta skref. Þetta er ákaflega spennandi og gaman verður að sjá hvernig þessu vindur fram,“ segir Menja og minnir á í þessu samhengi að það sé löngu tímabært að hætta notkun burðarplastpoka. Ýmis erlend sveitarfélög, landshlutar og jafnvel heilu löndin séu komin vel á veg með að banna notkun burðarplastpoka með öllu.
Mest lesið „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Innlent Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Innlent Útlagar spreyjaðir gylltir Innlent Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Innlent Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja Innlent „Ákveðnar efasemdir um ákveðna þætti“ Innlent Dómi Harvey Weinstein snúið við Erlent Helga Þórisdóttir komin með lágmarksfjölda meðmæla Innlent Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Innlent Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Innlent Fleiri fréttir Framboðslistar opinberaðir eftir helgi Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Glæsileg þjóðbúningamessa á Hvolsvelli Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Forsetaslagurinn, leit að eiganda fjármuna og rjómablíða Fjölbreytt verkefni hjá björgunarsveitum í dag Útlagar spreyjaðir gylltir Helga Þórisdóttir komin með lágmarksfjölda meðmæla Sinueldur í Reykjanesbæ Pétur Einarsson leikari látinn Kólnar á öllu landinu eftir óvenjugóðan fyrsta sumardag „Ákveðnar efasemdir um ákveðna þætti“ Fimm teravött af orku og 20 milljarðar í samgöngur Seltjarnarnesbær gengur frá sölu á Safnatröð Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Umdeilt frumvarp, íslenskan og sumarveðrið Eiríkur og Bjarni takast á um nefnd um íslenska tungu Ræða mest málefni íslenskunnar á fundum enskumælandi ráðs Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Segir borgarstjóra óttalegan vettling Vilja taka upp auðlindagjald að hætti Norðmanna „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Stefnir í sólríkan og hlýjan sumardag fyrsta víða um land Eigendur sjókvíaeldis þurfa ekki að greiða auðlindagjald Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Veturinn sá kaldasti síðan 1999 Vill rjúfa framkvæmdastopp í orkumálum Kári Stefánsson, ákall um vaxtalækkun og hinsegin list Skemmtiferðaskip um tíu metrum frá strandi við Viðey Sjá meira