Hollenskir sparifjáreigendur ætla að kæra Ísland sjötta maí 30. apríl 2009 13:26
Hópur sparifjáreigenda sem átti fé á reikningum Icesave í Hollandi hefur ítrekað kröfur sínar til Jóhönnu Sigurðardóttur um að lausn verði fundin á málum þeirra. Að öðrum kosti verður lögð fram kæra gegn íslenska ríkinu þann 6. maí næstkomandi hjá Eftirlitsstofnun EFTA og hjá Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins. Hollendingarnir segja að verið sé að mismuna fólki eftir þjóðerni með því að tryggja innistæður íslenskra viðskiptavina Landsbankans en ekki erlendra. Í fréttatilkynningu frá hópnum kemur meðal annars fram að sérfræðingar í Evrópusambandinu hafi þegar staðfest lögmæti kröfunnar en um 200 einstaklinga er að ræða. Fólkið krefst þess að fá greitt sparifé sitt inn á reikninga Nýja Landsbankans, líkt og íslenskir sparifjáreigendur fengu, eða að fá féð sem tapaðist við hrun Landsbankans bætt með öðrum hætti. Hópurinn, sem kallar sig Icesaving Association, telur að með þeirri ákvörðun Alþingis, sem mörkuð var með neyðarlögunum 6. Október síðastliðinn, að verja innistæður Íslendinga sé verið að mismuna sparifjáreigendum á grundvelli þjóðernis. Slíkt sé óheimilt samkvæmt EES samningnum. Hópurinn krefst því að Jóhanna vinni að lausn þeirra mála og að stjórnvöld bæti þeim það fé sem tapast hafi umfram það sem hollensk stjórnvöld munu bæta. En þeir sem áttu Icesave reikninga í Hollandi fá greiddar 100 þúsund evrur frá stjórnvöldum þar í landi. Liðsmenn Icesaving eru hinsvegar þeir sem áttu meira en þetta á reikningum sínum og eins og staðan er í dag eru þeir peningar tapaðir. Talsmaður hópsins, Gert van Vliet segir það þungbær skref að kæra Íslendinga. „Flest okkar hafa ríka samúð með Íslendingum," segir hann. Það breyti því hins vegar ekki að íslensk stjórnvöld hafi sagst vera tilbúin til þess að gera hvað sem til þess að endurvinna traust á landinu í öðrum löndum. Hins vegar séu stjórnvöld í þessu máli tilbúin til þess að brjóta einföldustu evrópureglur sem Íslendingar hafi skuldbundið sig til að fylgja. Hópurinn hafði áður sent Jóhönnu Sigurðardóttur bréf vegna málsins sem hún hefur ekki brugðist við að sögn Gert van Vliet. Hún hefur því fengið annað bréf þar sem hún er minnt á fyrra bréfið auk þess sem henni eru sendar hamingjuóskir með úrslit kosninganna. Tilkynningu frá hópnum og bréfið til Jóhönnu má sjá hér fyrir neðan.
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Marius látinn laus Erlent Fleiri fréttir Vægari úrræði ættu að koma á undan vistun fjölskyldna í brottfararstöð Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi Sjá meira