Fótbolti

Hollenska pressan ánægð með andrúmsloftið á æfingu íslenska liðsins

Óskar Ófeigur Jónsson í Amsterdam skrifar
Hollenska pressan fylgdist með æfingu íslenska liðsins í dag.
Hollenska pressan fylgdist með æfingu íslenska liðsins í dag. Vísir/ÓskarÓ
Íslensku strákarnir hittu bæði íslenska og hollenska blaðamenn í morgun á annarri æfingu Íslands fyrir leikinn við Holland á Amsterdam Arena á fimmtudaginn.

Ómar Smárason, fjölmiðlafulltrúi íslenska liðsins, fékk jákvæð viðbrögð frá hollensku blaðamönnunum, eftir fundinn en Hollendingarnir sóttu mikið í þá leikmenn íslenska liðsins sem hafa verið að spila í Hollandi.

Hollenska pressan talaði sérstaklega um það hversu miklu betra andrúmsloft var í kringum íslenska liðið en á blaðamannafundi með hollenska liðinu í gær.

Það er mikil pressa á hollenska liðinu fyrir þennan leik á fimmtudaginn og hún kristallaðist kannski í samskiptum blaðamanna og leikmanna fyrir leikinn.

Hollenska knattspyrnusambandið setti meðal annars fram allskyns reglur og skilyrði fyrir þá blaðamenn sem fengu hollenska leikmenn í viðtöl. Þeir máttu sem dæmi aðeins tala við einn leikmann og aðeins spyrja viðkomandi leikmann út í málefni tengdum landsliðinu.

Ómar Smárason og strákarnir tækluðu blaðamannaviðburðinn í dag af sömu fagmennsku og þeir gera inn á vellinum og allt gekk mjög vel. Það er vel hægt að taka undir orð Hollendingana um hið létta og þægilega andrúmsloft sem hefur verið í kringum hópinn síðan að Lars og Heimir tóku við.

Kolbeinn Sigþórsson og Alfreð Finnbogason voru stórar stjörnur í hollensku deildinni og þeir fóru því ófá viðtölin í dag, bæði hjá hollensku blaðamönnunum og þeim hollensku.


Tengdar fréttir

Birkir Bjarna bætir við sig fimmta tungumálinu

Birkir Bjarnason segir að honum líki lífið vel í Sviss eftir flutningana frá Ítalíu í sumar. Birkir leikur með Basel sem hefur farið vel af stað í deildinni þótt liðinu hafi skrikað fótur í forkeppni Meistaradeildar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×